Náttúrufræðingurinn - 1967, Síða 47
139
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN
ákvörðunaraðferðin var á þessum árum nýlega fundin og ef til vill
naumast komin af tilraunastigi. Samt má ætla af niðurstöðunni,
að Elliðaárhraun sé ekki eldra en um 5 þús. ára og varla heldur
miklu yngra.
Niðurstaða nýju aldursákvörðunarinnar hjá Hlíðardalsskóla er
eflaust nrun áreiðanlegri, og hún er einnig nákvæmari að því leyti,
að þar hlýtur hraunið, sem kolaði jurtaleifarnar, að vera jafn-
gamalt þeim að kalla, þ. e. um 4530 ára.
Ég gerði mér fyrirfram vonir um, að þessi aldursákvörðun myndi
annaðhvort styðja eða afsanna þá kenningu Þorleifs, að Elliðaár-
hraun sé angi af Leitahrauninu. Sú von rættist laklega. Sá aldurs-
munur á hraununum, sem fram kemur af niðurstöðum aldurs-
ákvarðananna — þ. e. sennilegast 730, en a. m. k. (skv. uppgefnum
skekkjumöguleika) 530 ár — er naumast nægur til að afsanna, að
hraunin hafi runnið samtímis, nema hann fáist staðfestur með
nýrri ákvörðun á aldri Elliðaárhraunsins.
Ekruliorn í Saurbæ
Árið 1921 birtist í riti Jarðfræðiféfagsins í Stokkhólmi alllöng
grein (58 bls.) um minjar sjávar og jökuls og þó einkum um forn-
skeijar við Breiðafjörð. Þetta var engin flýtisskýrsla um tilviljana-
kennda uppgötvun náttúruskoðara á hraðri ferð, heidur þrautunn-
in vísindaleg ritgerð um nákvæmar rannsóknir höfundar og rök-
studdar ályktanir. Merkisrit um skyld efni höfðu nú fyrr sézt f
Svíþjóð eftir þarlenda brautryðjendur í kvarterjarðfræði. En höf-
undur þessarar greinar var ekki úr þeirra hópi. Hann hét Guð-
mundur G. Bárðarson, og heimilisfang hans er skilmerkilega til-
greint: Bær, Hrútafjörður, ísland.
I þessari ritgerð (Guðm. G. Bárðarson 1921) segir m. a. frá rann-
sóknum höfundar í Saurbæ í Dalasýslu. Sú sveit er lítið, flatt undir-
lendi eða stuttur dalur, sem gengur suður frá Gilsfirði utanverð-
um. Fyrir dalmynninu eru víðast bakkar með sjónum, allt að 20
m háir á kaflanum frá Tjaldanesi inn fyrir Kaldrana. Aðalefni
þeirra sjávarbakka er leir með steinvölum og hnullungum á víð
og dreif, einkum neðst, en elst í brúninni er víða þunnt lag af
sandi og möl. Úr leirnum og sandinum safnaði Guðmundur Bárð-
arson fjölda fornskelja. Vissar tegnndir reyndust fylgja vissum
hæðum í bökkunum, í höfuðdráttum eins og hér segir: