Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 14
3. mynd. Trítilblaka Pipistrellus nathusii er eina evrópska leðurblökutegundin sem hér
hefur orðið vart. Leðurblökur geta ekki staðið uppréttar á jörðinni og verða að skríða með
aðstoð þumalsins á vænghnúanum. — Nathusius’ Pipistrelle Pipistrellus nathusii is the only
European bat recorded from lceland. Teikning/drawing Jón B. Hlíðberg.
fínnst í skipi (John E. Hill, pers. uppl.).
M.s. ísnes var nýkomið frá Bandaríkjun-
um og fundust fímm aðrar leðurblökur í
lest þess á sama tíma. Ætla mætti að dýrin
hafí öll verið sömu tegundar, en hitt dýrið,
sem var varðveitt, reyndist þó vera ljós-
fæla. Því miður var fjórum dýranna hent
áður en þau voru greind til tegundar en það
hafa líkast til verið skógarblökur og/eða
ljósfælur.
Á 5. mynd eru sýndir fundarstaðir leður-
blaka á og við ísland. Athygli vekur hve
dreifíng þeirra er áberandi suð- og vestlæg.
Það er þó skiljanlegt þegar haft er í huga
hvar flest dýranna sem hafa verið greind til
tegundar eru upprunnin.
Ef við athugum hvenær á árinu leður-
blökur sjást kemur í ljós að öll dýrin
fundust seinni hluta árs, frá ágúst fram í
desember. Þetta er sá árstími þegar leður-
blökur eru helst á ferð frá sumarslóðum til
vetrardvalarstaða. Ein hrímblakan fannst
þó ekki fýrr en í desember og er það
óvenjuseint, því í Kanada er fartími hrím-
blaka einungis fram í október (Van Zyll de
Jong 1985).
■ UMRÆÐA
Hvernig berast leðurblökur TIL
LANDSINS?
Islenska landspendýrafánan er mjög fá-
breytt samanborið við meginlöndin beggja
vegna. Ástæðan er augljós. Island hefur
ekki verið tengt öðrum löndum eftir að
ísaldarjökullinn hopaði, fyrir u.þ.b. 10
þúsund árum og hafíð torveldar flestum
landspendýrum að komast til landsins.
Tvær náttúrulegar leiðir eru helst opnar
landspendýrum að Islandsströndum, á ís
eða fljúgandi.
Fáar tegundir landspendýra lifa á heim-
skautaslóðum svo ekki er við mörgum
tegundum að búast úr þeirri átt. Vafah'tið
bárust refír Alopex lagopus upphaflega til
landsins með hafís, en þeir eru álitnir einu
landspendýrin sem höfðu hér fasta búsetu
fyrir landnám (Páll Hersteinsson 1980).
Hvítabimir Thalarctos maritimus koma
líka með ís.
Á ferðum sínum milli heimshluta hefur
maðurinn viljandi eða óviljandi borið með
8