Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 28
9. mynd. Skýringarmynd af uppbyggingu veðurspá- og veðurfarslíkana (Washington og
Meehl 1989). Veðurspálíkön og sum veðurfarslíkön gera ráð fyrir einfaldara hafi en
myndin sýnir.
Veðurfarslíkön hafa batnað mikið á allra
síðustu árum. Af þessu leiðir að líkönin eru
nú fær um að endurspegla núverandi
veðurfar á jörðinni mun betur en áður. Það
er að sjálfsögðu fyrsta skilyrði þess að
hægt sé að bera eitthvert traust til niður-
staðnanna hvað varðar hlýnun. I reikn-
ingunum er andrúmsloftinu skipt upp í
nokkur lárétt lög, oft 10-20 talsins, og
hverju lagi skipt upp í allmarga kubba sem
eru oftast 3-10 breiddar- eða lengdar-
gráður á kant. Ef hafstraumar eru reiknaðir
sérstaklega er höfum skipt upp með svip-
uðum hætti. Þessi skipting er svo gróf að
Island „sést“ alla jafna ekki í reikn-
ingunum. Reikningamir eru mjög tíma-
frekir, þrátt fyrir að reikninetið sé haft
gróft, og geta tekið fleiri vikur eða mánuði
á öflugustu tölvum sem framleiddar hafa
verið. Til marks um það hversu umfangs-
miklir reikningarnir eru má hafa það að
tölva með reiknigetu venjulegrar 386 PC-
tölvu hefði þurft að byrja að reikna fyrir
Krists burð til þess að niðurstöður úr einni
keyrslu lægju fyrir nú. Engu að síður
skortir allmikið á að líkönin séu nægilega
góð til þess að segja með nákvæmni til um
líklegustu hlýnun af völdum vaxandi gróð-
urhúsaáhrifa. Sérstaklega eru aðferðir til
þess að reikna samspil sjávar og and-
rúmslofts frumstæðar og einnig út-
reikningar í sambandi við hafís. Mikil
óvissa rikir einnig um það hvernig fara
skal með ský og úrkomu í líkönunum. Þrátt
fyrir þetta hafa líkönin aukið mjög skilning
manna á veðurfarssveifium, einkum og sér
í lagi á mikilvægi samspils hafstrauma og
andrúmslofts í því sambandi.
REYNSLUSAMBÖND í
VEÐURFARSLÍKÖNUM
Eins og nefnt var hér að framan er reikni-
net veðurfarslíkana mjög gróft. Möskva-
stærð reikninetsins er alla jafna mörg
hundruð kílómetrar. Mörg ferli sem máli
skipta fyrir þróun veðurs ná yfír svo lítil
svæði hverju sinni að þau týnast ef svo má
segja í möskvunum í reikninetinu. Sem
dæmi um slík ferli má nefna skýjamyndun,
úrkomu, djúpsjávarmyndun og ýmis ferli
sem tengjast hafínu. Hér er komið að einu
meginvandamáli veðurspá- og veðurfars-
22