Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 22
Styrkur C02 í andrúmslofti fyrir iðnbylt-
ingu er talinn hafa verið um 280 ppm og
hefur hann því aukist um 28%. Nokkrar
sveiflur hafa verið í hraða aukningarinnar
síðustu árin eins og sjá má á 4. mynd. Þetta
má sennilega rekja til breytilegra strauma í
N-Kyrrahafí sem nefnist „E1 Nino“ og
minnst er á síðar í þessari grein og vegna
eldgossins í Pinatubo-fjalli á Filipseyjum
sumarið 1991. Þannig var hraði aukningar-
innar óvenju lítill frá miðju ári 1991 fram á
mitt ár 1993 en aukningin virðist vera að
ná sér á strik að nýju. Hraði aukningarinnar
var einnig tiltölulega lítill á árinu 1982.
JAFNGILDISSTYRKUR
KOLDÍOXÍÐS
Magn annarra gróðurhúsalofttegunda í
andrúmsloftinu fer einnig vaxandi. Það er
býsna langt mál og flókið að lýsa áhrifum
þessara efna hvers fyrir sig en þó má geta
þess að sum halógenkolefni eru allt að
10.000 sinnum áhrifameiri en C02. Þau
hafa því umtalsverð áhrif þótt magnið sé
sáralitið. A móti kemur að sum þeirra eyða
ósoni, eins og frægt er, en óson hefur
einnig mikil gróðurhúsaáhrif, sem þá
minnka. Áhrif annarra lofttegunda eru oft
reiknuð út miðað við C02 og nefnast
samanlögð áhrifin reiknuð á þennan hátt
jafngildisstyrkur koldíoxíðs. Nú eru sam-
anlögð áhrif C02 og allra þeirra gróður-
húsalofttegunda sem maðurinn hefur losað
út í andrúmsloftið talin jafngilda rúmlega
400 ppm styrk C02, sem er um 45%
4. mynd. Efri hluti myndarinnar sýnir
styrk C02 í andrúmsloftinu á síðustu
árum. Neðri hluíinn sýnir aukningu í styrk
C02 í ppm á ári (WMO 1994).
aukning frá því sem var fyrir iðnbyltingu.
Talið er að aukning gróðurhúsaáhrifa á
næstu árum muni skiptast þannig að rúmur
helmingur (um 60%) verði af völdum C02
og tæpur helmingur (um 40%) af völdum
annarra gróðurhúsalofttegunda. Gróður-
húsaáhrif þessara lofttegunda vaxa nú um
u.þ.b. 1% á ári og er liklegt að það muni
þau halda áfram að gera í allmörg ár enn,
jafnvel áratugi, nema gripið verði til mjög
róttækra ráðstafana til þess að minnka
mengun sem veldur gróðurhúsaáhrifum. Ef
svo fer fram sem horfír mun jafngildis-
styrkur gróðurhúsaloft-
tegundanna fara yfír 560
ppm um árið 2020. Það
svarar til þess að styrkur
C02 í andrúmsloftinu
hafí tvöfaldast frá því
sem var fyrir iðnbyltingu
og breytingin verður þá
orðin milli tvöfalt og
þrefalt meiri en náttúru-
legar styrkbreytingar
C02 milli hlýskeiða og
kuldaskeiða ísalda, sem
vikið verður að hér á
eftir.
5. mynd. Hitabreytingar á norðurhveli jarðar 1880-1975 (sjá
skýringar við 2. mynd).
16