Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 72

Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 72
1. mynd. Tékkn- eski læknirinn Jan Evangelista Purkinje (En- cyclopædia Brit- annica - Tékkn- eska fréttastofan, CTK). gömlu meistaranna rétt einu sinni“. í framhaldi af þessu var safnað undirskriftum á skjal þar sem krafíst var afsagnar Purkinjes. DAUFHEYRÐUR Á ÞÝSKU Purkinje lét sér þetta sem vind um eyru þjóta, enda sagður „daufheyrður á þýsku“. Hann stofnaði í Breslau fyrstu sjálfstæðu rannsóknastofuna í lífeðlisfræði. Stofnunin fékk raunar ekki um sinn inni í háskólanum. Otto prófessor, sem fyrr er nefndur, lagðist gegn því, meðal annars vegna þeirrar fýlu sem frá henni hlyti að leggja. Purkinje setti því fyrstu lífeðlisfræðirannsóknastofu Evrópu upp heima hjá sér. Tengdafaðir Purkinjes, Carl Asmund Rudolphi, var prófessor í lífeðlisfræði og líffærafræði við Berlínarháskóla. Hann var brautryðjandi í snikjudýrafræði og stórjók þekkingu manna á innyflaormum. Því miður varð honum sú skyssa á að telja ormana afleiðingu en ekki orsök sjúk- leikans. 2. mynd. Það var Purkinje sem vakti fyrstur manna at- hygli á að hœgt væri að þekkja menn á fingraförum. Mynd frá Tœknideild Rannsóknalögreglu ríkisins. ■ HELSTU UITUÖTVANIR PURKINJES Purkinje er talinn hafa fyrstur manna tekið upp verklega kennslu í raunvísindum við þýskan háskóla. Hann gerbylti allri tækni við gerð smásjársýna. Til dæmis tók hann fyrstur í notkun smáskerann (míkrótóminn). Það er eins konar nákvæmnisútgáfa af áleggsskurðarvél, sem sneiðir sýni til smásjárskoðunar í afar þunnar og jafnt skomar sneiðar (nokkra mikrómetra2). Hann notaði líka fyrstur ísedik og kalíum- tvíkrómat til að verka sýni til smásjár- skoðunar. Þegar varðveita á verkuð og lituð smásjársýni eru þunnsneiðarnar límdar á milli þar til gerðra glerja, burðarglers og þekjuglers. Algengasta límið hefur til skamms tíma og jafnvel fram á þennan dag verið kanadabalsam, kvoða úr norðuramer- isku barrtré, balsamþini, Abies balsamea. Einnig í þessu efni mddi Purkinje brautina; enginn límdi smásjársýni með kanada- balsami á undan honum. Loks er hann talinn hafa fyrstur manna tekið ljósmyndir gegnum smásjá. Þekktastur er Purkinje trúlega fyrir lýs- ingu sína á stórum, greinóttum taugafrum- um í hnykli heilans (litlaheila), purkinje- frumum (1837), og boðflutningskerfí í vöðvavef innan hjartans, purkinjetrefjum (1839). Kjama óþroskaðra eggfrumna í eggjastokkum konu uppgötvaði Purkinje 1825. Hann lýsti árið 1829 áhrifum kam- fóru, ópíums, belladonna og terpentínu á menn. Árið 1833 uppgötvaði hann svita- kirtlana og veitti 1836 athygli prótínsundr- andi eiginleikum brissafa. Hann kemur einnig við sögu réttarlæknisfræði því árið 1825 benti hann á það að hægt væri að þekkja menn á fíngraforum. Árið 1850 varð Jan Purkinje prófessor i lífeðlisfræði við Háskólann í Prag og gegndi því embætti til dauðadags. 2 Einn míkrómetri, pm, er þúsundasti hluti úr millímetra. 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.