Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 34
14. mynd. Þessi mynd prýddi forsíðu
tímaritsins „ World Climate News" í júní
1993 og þarfnast vart skýringa.
hlýna verulega á næstu áratugum. Sumir
þeirra telja líklegast að gróðurhúsaáhrifin
séu nú þegar komin fram að nokkru leyti í
veðurathugunum, þó að um það séu skiptar
skoðanir.
ÞAÐ GETUR ORÐIÐ
ERFITT AÐ SNÚA TIL BAKA
Það er Ijóst að áhrif þeirra gróðurhúsa-
lofttegunda sem þegar hefur verið dælt út í
andrúmsloftið eru ekki komin fram nema
að litlu leyti, vegna þess að veðrakerfi
jarðar er nokkurn tíma að átta sig á breyt-
ingum, ekki síst vegna áhrifa hafsins á veð-
urfar. Þetta er eitt þeirra atriða sem valda
mönnum hvað mestum áhyggjum í sam-
bandi við gróðurhúsaáhrif. Þegar hlýnunin
vcrður orðin svo mikil að aukin gróður-
húsaáhrif eru ótvírætt komin fram mun
hlýnun halda áfram af fullum krafti í mörg
ár eða jafnvel áratugi án þess að aðgerðir
til að draga úr mengun hafí nein umtals-
verð áhrif þar á fyrst í stað. Stöðvun C02-
mengunar strax á næsta ári hefði því ekki
merkjanleg áhrif á þróun veðurfars fyrr en
að a.m.k. áratug liðnum.
SAMANTEKT
Það er óumdeilt að gróðurhúsaáhrif hafa
afgerandi áhrif á orkubúskap lofthjúpsins
og að án gróðurhúsalofttegunda í andrúms-
loftinu væri mikill hluti jarðarinnar
óbyggilegur. Það er einnig óumdeilt að
styrkur helstu gróðurhúsalofttegunda fer
vaxandi og mun halda áfram að vaxa á
næstu áratugum. Flestir vísindamenn telja
að þetta muni leiða til hlýnunar að meðal-
tali yfír jörðina en deilt er um hversu mikil
og hröð hún verður. Ovissa ríkir um dreif-
ingu hlýnunarinnar en ljóst þykir að hún
verður misjöfn eftir svæðum.
Hlýnun á Islandi er mikilli óvissu undir-
orpin vegna vandkvæða á því að reikna
breytingar á hafstraumum sem verða kunna
samfara hlýnun. Niðurstöður flestra ný-
legra reikninga gefa til kynna að hlýnun á
N-Atlantshafí, og þar með á Islandi, verði
minni en annars staðar á sömu breiddar-
gráðum vegna minnkandi djúpsjávarmynd-
unar í hafínu í grennd við landið. Hlýnunin
gæti engu að síður orðið umtalsverð, e.t.v.
0,3°C á áratug, sem er svipað og búist er
við að meðaltali yfír jörðina alla.
Sú niðurstaða líkanreikninganna að
draga muni úr djúpsjávarmyndun í N-
Atlantshafí þegar hlýna tekur vegna vax-
andi gróðurhúsaáhrifa vekur að sjálfsögðu
upp mikilvægar spurningar um breytingar
á hafstraumum, uppeldisskilyrði nytja-
stofna og fískigengd í hafínu í kringum ís-
land. Það virðist þó borin von að líkönin
geti svarað slíkum spurningum af einhverri
nákvæmni á næstu árum. Líkönin benda
óneitanlega til þess að umtalsverðar breyt-
ingar geti orðið í hafínu en eru fámál um
það hvort þær verði til góðs eða ills fyrir
vistkerfí hafs.
Að svo stöddu er ekki hægt að skera úr
um það hvort hlýnunar af völdum vaxandi
gróðurhúsaáhrifa sé þegar farið að gæta í
veðurfari á jörðinni eða á Islandi. Vegna
28