Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 11
1. mynd. Hrímblakan Lasiurus cinereus sem fannst hjá Bjarnastöðum í Selvogi haustið
1957. Myndin er af dýrinu uppsettu á Náttúrufræðistofnun Islands. Hrímblaka er
algengasta tegund leðurblaka sem fundist hafa hér á landi. Hún dregur nafnið af
hrímgráum feldi. - The Hoaty Bat Lasiurus cinereus found at Bjarnastaðir in Selvogur
in autumn 1957. The photo shows the mounted specimen at the Icelandic Museum of
Natural History. This is the most common bat species in Iceland. Ljósm./photo Erling
Olafsson.
munandi leðurblökutegundir (Ryberg
1947). í þýsku útgáfunni (Pennant 1787b)
er tegundin talin vera Vespertilio murinus,
sem er kölluð apalblaka á islensku. Preyer
og Zirkel (1862) telja tegundina sem Penn-
ant á við vera Vespertilio pipistrellus, sem
nú er jafnan kölluð Pipistrellus pipistrellus
en dvergleðurblaka á íslensku. Ekki verður
séð að þessar tegundargreiningar séu neitt
annað en ágiskanir og því er ógjörningur
að taka þær til greina. Bæði Koopman
(bréf, dagsetl 26. jan. 1966) og Krzan-
owski (1977) töldu (hvor í sínu lagi að því
er virðist) að Pennant hlyti að eiga við
hrímblöku Lasiurus cinereus. Sú ályktun
var líka byggð á getgátum því þeir tóku
mið af þeim tegundum sem þá höfðu
örugglega sést áður, en þess háttar teg-
undagreiningu er ekki treystandi.
■ ÍSLENSKAR ATHUGANIR
Skráðar leðurblökukomur eru 13 á íslandi.
1 öllum tilvikum var um stök dýr að ræða,
nema árið 1981 þegar sex dýr fundust
saman. Því er vitað um 18 einstaklinga
héðan (1. tafla, bls 7).
Til viðbótar 18 ofangreindum dýrum
geta Hutson og Hill (1986) um tvær
leðurblökur sem sáust í Ingólfshöfða (A-
Skaft) 24. júlí 1984. Við nánari skoðun
þykir ekki ráðlegt að taka þá athugun til
greina. Aðstæður benda eindregið til þess
að þama hafi verið um sjósvölur Oceano-
droma leucorrhoa eða stormsvölur Hydro-
bates pelagicus að ræða.
í þremur tilvikum af þessum 13 sáust
leðurblökumar aðeins á flugi. Þess vegna
er ekki vitað hvaða tegundir áttu í hlut. í
tveimur tilvikum til viðbótar em dýrin ekki
varðveitt og engin tegundargreining fyrir
hendi. Tegund er því þekkt í átta tilvikum
og á við alls níu dýr.
Náttúrufræðistofnun íslands geymir
langflest dýrin sem hafa varðveist. Sex em
geymd heil í vökva en eitt er uppsett (1.
mynd) og skrokkur þess í vökva. Skrokkar
tveggja dýra til viðbótar eru varðveittir í
vökva en skinn þeirra eru uppsett í Vest-
mannaeyjum, annað á byggðasafninu en
hitt á Náttúrugripasafni Vestmannaeyja.
5