Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 47
Hvítar grálúður
VEIÐAST Á
ÍSLANDSMIÐUM
Það er alþekkt í dýraríkinu að afbrigði-
legir einstaklingar eiga mjög erfitt upp-
dráttar og ná yfirleitt ekki háum aldri.
Einnig er þekkt að frávikfrá venjulegu
útliti geta verið staðbundin og jafnvel
tímabundin. Hér greinir frá grálúðu-
hvítingjum semflestir hafa veiðst á sömu
veiðislóð vestur af landinu.
rá árinu 1990 hafa íslensk tog-
veiðiskip veitt fímm hvitar grá-
lúður (Reinhardtius hippoglosso-
ides (Walbaum, 1792)). Að því er
best er vitað hafa slíkar grálúður ekki fyrr
veiðst hér við land, og aðeins er vitað um
örfáa slíka fundi erlendis frá.
HVÍTINGjAR
í DÝRARÍKINU
Hvítingjar, eða albínar, eru kunnir úr dýra-
ríkinu, bæði meðal hryggleysingja, fiska,
fugla og manna. Húð hvítingja er skjanna-
hvít, oft með bleikum blæ, hár hvítt eða
gulleitt og augu rauðleit eða blágrá. Litar-
efnaskortur i augum leiðir til þess að líf-
veran þolir illa sterka birtu. Útlit þetta á sér
erfðafræðilegar orsakir sem leiða til þess að
Magnús Þór Hafsteinsson (f. 1964) lauk prófi í fisk-
eldisfræði frá Bændaskólanum á Hólum 1986, cand.
mag.-prófi i fiskeldis- og rekstrarfræðum frá Héraðs-
háskóla Sogn- og Firðafylkis í Noregi 1991 og cand.
scient.-prófi í fiskifræði frá Háskólanum í Bergen
1994. Hann vinnur nú að doktorsverkefni í fískifræði
við Háskólann í Tromso.
lífveran er ekki fær um að mynda litarefni í
húð, augum, hári, fjöðrum og öðrum horn-
himnum likamans. Framleiðsla litarefnisins
melaníns er dýrum nauðsynleg til þess að
öðlast eðlilegan litarhátt. Það gerist við
efnahvörf með hjálp efnahvata (ensíma) í
sérstökum litarefnafrumum líkamans.
Framleiðsla á efnahvötunum stjórnast af
erfðavísum (genum). Einn þessara efna-
hvata er týrósínasi sem umbreytir við oxun
amínósýrunni týrósín í 3,4-díhýdroxý-
phenýlalanín (dopa). Áframhaldandi oxun
endar með myndun litarefnisins melaníns.
Ef ekki eru fyrir hendi erfðavísar lil fram-
leiðslu týrósínasa stöðvast efnahvarfið
vegna vöntunar á efnahvatanum og ekkert
litarefni myndast. Þetta veldur því að líf-
veran verður hvítingi (Gardner 1975).
Meðal fiska í náttúrunni eru hvítingjar
afar sjaldgæfír. Slíkir einstaklingar skera sig
eðlilega mjög úr umhverfi sínu og eiga því
væntanlega erfiða lífsbaráttu. Fágætt er að
hvítir fiskar finnist við ísland. í skráðum
heimildum er aðeins kunnugt um að hvítar
ýsur hafi veiðst hér við land. Bjarni Sæ-
mundsson (1926) getur um slík fyrirbæri og
Einar Jónsson (1991) greinir frá nýlegri
fundum ýsuhvítingja á Islandsmiðum. Afar
fá dæmi finnast um hvítingja meðal flat-
fiska (Gartner 1986).
GRÁLÚÐUHVÍTINGJAR á
ÍSLANDSMIÐUM
Grálúður með eðlilegu litafari geta verið
breytilegar útlits. Þær eru dökkar með dökk-
Náttúrufræðingurinn 64 (I), bls. 41-46, 1994.
41