Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1994, Side 45

Náttúrufræðingurinn - 1994, Side 45
2. mynd. Hóllinn svarti séður vestan frá. Ljósm. Jón Jónsson. Ekki sýnist ólíklegt að hæðardrag þetta hafi verið leifar af og framhald af jökul- garði þeim sem rekja má slitur af austan frá Kúðafljóti um Skálmabæjar-Grjóteyri, hæðirnar sem bæirnir Holt og Herjólfs- staðir standa á og vestur um Krosshól, sem ásamt fleiri jökulgarðsbútum er vestan við byggð í Álftaveri. Múlinn sem forðum var skammt austur af þeim foma Höfðabrekku- bæ og Múlakvísl hefur nafn af gæti hafa verið framhald þessa jökulgarðs. ■ nafnlaus hæð Uppi á Hjörleifshöfða miðjum er hæð, sem á nefndu korti (1905, 1:50.000) er sýnd vera í 176 m hæð h.y.s. en virðist nafnlaus. Þetta er bungulaga hæð eða öllu fremur hóll, harla dökkur á að sjá. Hann er vart minna en 300 m frá norðri til suðurs neðst en um 100 m minna þvert yfír Höfðann. Með loftþyngdarmæli mælt reyndist mér hann nær 80 m hár neðan frá móberginu sem undir honum er og kemur fram í hvössum hamrabrúnum Höfðans báðum megin. Hann er úr lausagrjóti af öllum stærðum og gerðum, vikri og öðrum ung- legum gosefnum, ösku og sandi. Rauðamöl og einstaka leirsteinsflögur má þar líka sjá. Steinar með ljósa veðrunarhúð dreifast næsta jafnt um allt yfirborðið en ekki nema einn og einn meðal þeirra verðskuldar að nefnast bjarg. Nokkra hefur frostið sprengt eftir að þeir lentu þama. Þessi myndun er svo þétt að ekki verður i hana grafíð með skóflu nema svo sem 30-40 cm. Þessum svarta hól hallar nokkuð jafnt til allra hliða nema hvað hann er nokkm brattari að sunnan, en skaftfellsku suðaustan stór- rigningamar hafa megnað að grafa inn í hann rásir að austanverðu. Öll þessi myndun situr ofan á fasta bergi Höfðans, sem er móberg, og hefur ekkert með þá bergmyndun að gera. Ekki fæ ég betur séð en að þessi kolsvarti hóll eigi til- veru sína jöklum að þakka, sé einn liður í jökulurðarhryggnum fyrrnefnda og hafí orðið til í jökulkrika þegar skriðjökull seint á síðasta jökulskeiði klofnaði um Höfðann og myndaði tvo ísstrauma sinn hvomm megin hans. Þama hygg ég því vera 39

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.