Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 56

Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 56
2. mynd. Italinn Galíleó Galílei (1564- 1642). Hann afsannaði þá kenningu Aristótelesar að þungir hlutir falli hraðar en léttir. hafði rætt þessi mál við samkennara sína og auglýst tilraunina. Stúdentamir létu sig ekki vanta en háskólakennararnir létu ekki sjá sig. Þeir létu sér Aristóteles nægja. Önnur saga segir frá því að áhugi Galíle- ós á þessum efnum hafi vaknað þegar hann sá ljósahjálm í dómkirkjunni í Písa sveifl- ast. Hjálmurinn hékk í langri taug i hvelf- ingu kirkjunnar og þjónn sem var að kveikja á honum hafði komið honum úr jafnvægi. Sveiflumar dofnuðu smám sam- an og Galíleó tók eftir því að minnstu sveiflurnar virtust taka jafn langan tíma og þær stærri. Hann fylgdi þessu eftir með til- raunum: lét létt og þung lóð sveiflast í löngum og stuttum taugum og mældi sveiflutímann eins nákvæmlega og honum var unnt. Þessar tilraunir staðfestu hugboð hans: sá tími sem hver sveifla tók - sveiflutíminn - var hvorki háður því hve stór sveiflan var (ef hún var ekki mjög stór) né því hvort lóðið var þungt eða létt, heldur var hann einungis háður lengd taugarinnar. Galílei var ljóst að þama var þyngdaraflið að verki, að þetta fyrirbæri er náskylt falli hluta. Sú staðreynd að þungir og léttir hlutir sveiflast jafn hratt þegar þeir em hengdir upp í jafn langa þræði svarar til þess að þungir og léttir hlutir falla jafn hratt. Nú vita að vísu allir að pappírsblað fellur hægar en blýlóð en þar á viðnám andrúmsloftsins sökina. Sé blaðinu hnoðað saman í kúlu verður munurinn minni og í lofttæmi falla þau jafn hratt. Síðan sneri Galíleó sér að því að rann- saka fall hluta nánar. En hann hafði ekki nema ónákvæm mælitæki og fallið gerist með miklum hraða þegar það er frjálst, svo að erfítt er að mæla það. Til að draga úr fallhraðanum fann Galíleó upp á því snjall- ræði að láta kúlu velta niður eftir þröngri rennu sem hallaðist lítið eitt. Skásta tækið sem hann hafði til tímamælinga var í aðal- atriðum ekki ósvipað sandklukkum þeim sem enn em stundum notaðar til að sjóða egg eftir, nema hvað Galíleó notaði vatn í stað sands: vatn rennur eftir pipu úr einu íláti í annað; loka er kippt upp um Ieið og kúlan fer af stað og lokað er fyrir jafnskjótt og kúlan er komin á leiðarenda. Síðan er vatnið vegið, vatnsmagnið er þá mæli- kvarði á tímann. Nútímamanni hættir kannski til að vorkenna Galíleó þessa fmmstæðu tækni, en rétt er að líta á það að óvíst er hvort hann hefði verið miklu bætt- ari þótt hann hefði átt yfír að ráða skeið- klukkum nútímans sem mæla tíundu eða jafnvel hundruðustu hluta úr sekúndu. Þá hefðu komið til sögunnar margir smávægi- legir óvissuþættir er hafa áhrif á niður- stöðumar og gera mælingamanninum erfiðara fyrir um að sjá aðalatriðin fyrir margvíslegum aukaatriðum. En Galíleó hafði rökstutt hugboð um aðalatriðið og fékk staðfestingu á því í tilraunum sínum: Sú vegalengd sem hlutur fellur stendur í réttu hlutfalli við annað veldi þess tíma sem fallið tekur. Eða - svo að dæmi sé tekið - velti kúlan einn metra eftir rennunni á einni sekúndu veltur hún ekki tvo heldur ijóra metra á tveimur sekúndum, ekki þrjá heldur níu metra á þremur sekúndum og ekki íjóra heldur sextán metra á fjórum sekúndum. Þegar kúla rennur niður rennibraut dylst ekki að hraði hennar fer vaxandi eftir því sem neðar dregur. Svipað gerist þegar kaffí er hellt úr könnu i bolla. Ef bunan er nógu 50

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.