Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 63
2. tafla. Lausnarhraði frá himinhnöttum.
Hnöttur Lausnarhraði í km/sek
Tunglið 2,4
Jörðin 11,2
Júpíter 61
Sólin 644
Síríus B 5000
Nifteindastjarna 160 000
atómkjama í einni kös. Með því að þjappa
sólinni svo mikið saman að þvennál henn-
ar yrði ekki nema 30 km mætti efla þyngd-
arsvið liennar svo að það yrði álíka öflugt
og hjá nifteindastjörnu.
Þegar stjama herpist saman eflist þyngd-
arsvið hennar og lausnarhraðinn eykst. Hjá
nifteindastjömunni í töflunni er hann kom-
inn í rúmlega helming ljóshraðans. Nú er
vitað að enginn hlutur kemst á meiri hraða
en ljóshraðann. Herpist stjarna svo mikið
saman að lausnarhraði hennar komist upp
fyrir ljóshraðann kemst ekkert frá henni,
ekki einu sinni ljós. Hún verður ósýnileg
með öllu, gerir einungis vart við sig með
þyngdaráhrifum sínum. Hér emm við kom-
in á heillandi brautir, á slóðir svarthola,
fyrirbæra sem mjög hafa verið til umræðu
á undanförnum áratugum meðal stjam-
vísindamanna. Augljóst er af því sem hér
hefur verið sagt að ekki er auðvelt að verða
svarthols var en engu að síður hallast menn
æ meir að því að trúa á tilvist þeirra.
Talið er að svarthol myndist þegar þéttur
kjami risastjömu hrynur saman undan
eigin þyngd. Við hrunið losnar feikna orka
úr læðingi og hún þeytir yfírborðslögum
stjömunnar út í geiminn í stórfelldri
sprengingu með mikilli ljósadýrð. Einnig
er talið að mun stærri svarthol kunni að
myndast í kjömum vetrarbrauta verði efnið
þar nógu þétt til þess að það hrynji saman.
Þar kann að vera komin skýringin á svo-
nefndum dulstirnum, fyrirbæmm er líkjast
7. mynd. Svarthol er ekki hægt að sjá beint og tilvist þeirra verður því einungis ráðin af
þyngdaráhrifum þeirra og útgeislun frá efni sem fellur inn í þau. Myndin er hugmynd
listamanns um tvístirnið Cygnus X-1 í Svaninum, þar sem önnur „stjarnan “ er svarthol,
en frá tvístirninu berst sterk röntgengeislun. Gas frá stœrri stjörnunni sogast á braut um
svartholið og skrújast inn i það eftir skífulaga brautum. Vegna viðnáms á leiðinni inn i
svartholið hitnar gasið svo mikið að það gefurfrá sér röntgengeisla.
57