Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1949, Qupperneq 5

Samvinnan - 01.12.1949, Qupperneq 5
alds konungs harðráða við Þjólarnes á Jótlandi, segir svo: Dögglingur fékk drekka danskt blóð ara jóði, hörð frá eg hildir gerði hugins jól við nes Þjólar. Hér er orrustan kölluð „hugins jól“, sem merkir veizlu hrafnsins, og lýtur þetta að því, að með mannfall- inu var hræfuglum gefið ríkulega að eta. Er það greinilegt, að í norrænu jólahaldi hefur verið ofurgnótt matar og drykkjar, sem haldizt hefur fram á þennan dag, enda halda sumir, að orð- ið jól merki beinlínis veizla eða drykkja. Segir svo í Sturlungu, að Snorri hafi veturinn 1226—27 haft jóladrykkju eftir norrænum sið í Reykholti og verið mannmargt hjá honum. Víða er í fornum ritum getið um miklar jóladrykkjur, enda var í Gulaþingslögum ölgerð fyrirskipuð fyrir jólanótt. Væri þetta mjög að vonum, ef jólin hafa sérstaklega verið Óðni helguð, eins og sumir halda, því að hann „lifði við vín eitt“ eins og segir í Grímnis- málum, og sátu æsir iðulega að sumbli. Segir svo í Agripi af Noregskonunga sögum, að eitt af heitum Óðins liafi verið Jólnir, „og var af Jólni jól köll- uð“. Ýmislegt þykir þó benda til, að jól í norrænum sið hafi fremur verið bundin við dýrkun Frevs en Óðins, enda segir Snorri beinlínis, að á miðj- um vetri skyldi blóta til gróðrar. En Freyr „ræður fyrir regni og skini sól- ar og þar með ávexti jarðar, og á hann •er gott að heita til árs og friðar.“ Á það, að samband hafi verið milli jóla- halds og Freysdýrkunar, bendir meðal annars vísa Þorbjarnar hornklofa um Harald konung hárfagra: Úti vill jól drekka, ef skal einn ráða fylkir hinn framlyndi og Freysleik heyja. „Freysleikur" lýtur vafalaust að ein- hvers konar helgihaldi eða venju, sem fram hefur farið á jólum í sambandi við þennan átrúnað. Má vera, að æva- forn sögn, sem fléttuð er inn í Helga- kviðu Hjörvarðssonar, upplýsi þetta nokkuð: „Helgi konungur var allmikill her- maður. Hann kom til Eylima konungs og bað Svávu dóttur hans. Þau Helgi Óðinn. Höggrnynd eftir 11. E. Fogelberg. og Sváva veittust várar og unnust furðu mikið. Sváva var heima með feður sínum, en Helgi í hernaði. Heðinn var heima með feður sínuin, Hjörvarði konungi í Noregi. Heðinn fór einn saman heim úr skógi jólaaft- an og fann tröllkonu. Sú reið vargi og hafði orma að taumum og bauð fylgd sína Heðni. Nei, sagði hann. Hún sagði: „Þess skaltu gjalda að bragar- fulli.“ Um kvöldið voru lieitstrengingar. Var fram leiddur sonargöltur. Lögðu menn þar á hendur sínar og strengdu þá heit að bragarfulli. Heðinn strengdi heit til Svávu, unnustu Helga bróður síns, og iðraðist svo mjög, að hann gekk á braut villistígu suður á lönd og fann Helga bróður sinn.“ Helga grunaði feigð sína og að það hefði verið fylgja hans er vitjaði Heð- ins. Hann kvað: Reið á vargi es rökkvið var fljóð eitt es Heðni fylgju beiddi, hún vissi það að veginn myndi Sigurlinnar sonur á Sigarsvöllum. 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.