Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 52

Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 52
SAMBANDIÐ milli föður og sonar er eitt af því merkilegasta í heiminum. Það veit eg nú vel, þegar eg sjálfur hef eign- ast syni. Drengur gerir alltaf ákveðnar kröfur til föður síns. Talið er að feður óski þess jafn- an, að synir þeirra megi verða það, sem þeir sjálfir hafa aldrei getað orðið. En eg veit af reynslu að hið gagnstæða á sér einnig stað. Eg man vel, að þegar eg var lítill drengur óskaði eg, að eg ætti pabba með ákveðnum eiginleikum, eiginleikum, sem pabbi minn atti ekki til að bera. Faðir minn átti að vera stilltur og virðulegur maður. Þegar eg væri í fylgd með öðrum drengjum, og hann gengi fram hjá á götunni, vildi eg geta sagt með staerilæti í röddinni: „Þarna er pabbi. Þetta er pabbi minn.“ En pabbi minn var ekki þannig að eg gæti það. Mér fannst hann alltaf vera að leika fífl jafnframt því, sem hann miklaðist af sjálfum sér. í þorpinu, þar sem við áttum heima, voru öðru hverju sýndir smáleikir. Allir í þorpinu tóku þátt í leikstarfseminni, lyfsalinn, dýralæknirinn og afgreiðslupiltur- inn i skóbúðinni, gamlar, æruverðar frúr og ungar stelpur. Pabbi lék æfinlega skrípa- hlutverkin. Ef leikritið fjallaði um borgara- stríðið lék hann einhvern hlægilegan her- mann, sem sagði og gerði hina heimskuleg- ustu hluti. Ollum nema mér fannst hann ákaflega spaugilegur og skemmtilegur. Mér fannst alveg hræðilegt að horfa á hann, og eg skildi ekki hvernig mamma fór að þola það, en hún hló bara þegar aðrir hlógu. Vafalaust hefði eg líka hlegið að honum, ef hann hefði ekki verið pabbi minn. I hvert sinn, sem þorpsbúar minntust ein- hvers þjóðhátíðardags tók hann þátt í skrúð- göngunni. Hann var meira að segja alltaf í broddi fylkingar sem hátíðarstjóri. Eg sá hann ríða hvítum hesti á undan fylkingunni og veifa marskálksstaf í kringum sig. En hann gat aldrei setið á hesti og datt af baki, en allur þingheimur veltist um af hlátri. Honum stóð alveg á sama um slíkt. Það leit jafnvel út fyrir að hann hefði ánægju af öllu saman. Eg man eftir einu sérstöku tilfelli, þegar hann lék fífl, og það meira að segja í aðal- götu bæjarins. Eg stóð og horfði á ásamt nokkrum öðrum drengjum. Þeir hlógu og hrópuðu til hans, og hann hló og hrópaði á móti og skemmti sér jafn vel og þeir. En eg læddist burtu, niður hliðargötu, bak við verzlunarhúsin og skreið inn í gamalt út- hýsi, þar sem eg lá lengi og grét alveg óhugg- andi. Eg man líka, þegar eg var háttaður á kvöldin og heyrði pabba koma heim, góð- glaðan ásamt hópi af félögum sínum. Hann var aldrei einn. Aður en söðlasmíðaverk- stæðið hans varð gjaldþrota var vinnustofa hans æfinlega full af kjaftandi slæpingjum. Auðvitað varð pabbi gjaldþrota vegna þess að hann lánaði allt of mikið. Hann kunni ekki að segja nei, þegar hann var beðinn um lán. I þeim efnum fannst mér hann vera mikið flón. Smám saman fór eg að hata hann. 52 Oft sá eg pabba í félagsskap með mönn- um, sem eg áleit að hefðu átt að telja sig of góða til að flækjast með honum. Það var t. d. skólastjórinn og hinn æruverðugi kaup- maður þorpsins. Eg man líka eftir hvíthærð- um, virðulegum manni, gjaldkeranum í bank- anum, sem eg sá með honum. Eg undraðist það alltaf, að þessir menn skyldu láta sjá sig í fylgd með öðrum eins skjallara og faðir minn var í mínum augum. Nú fyrst veit eg hvað það var, sem dró þá að honum. Lífið í fæðingarþorpi mínu var drepleiðinlegt eins og í öllum öðrum smáþorpum, en pabbi gat gefið því lit og ljóma. Hann kunni að segja sögur. Hann gat vakið hlátur. Stundum gat hann meira að segja fengið þorpsbúa til þess að syngja. Ef pabbi og félagar hans komu ekki heim til okkar á kvöldin, fóru þeir oft út á engið við ána. Þar matbjuggu þeir við lítið bál, sem þeir kveiktu, drukku öl og sátu í hvirf- ingu umhverfis föður minn og hlýddu sög- um hans. Sögurnar snerust mest um hann sjálfan og alla þá merkilegu hluti, sem komið höfðu fyrir hann um æfina. Og hann var ekkert sýtingarsamur í frásögnum sínum. Oft túlk- aði hann sjálfan sig sem erkifífl í þessum ÞEGAR ÉG FANN PABBA MINN Smásaga eftir SHERWOOD ANDERSON sögum, og þóttist maður að meiri. Ef Irlendingur kom í heimsókn til okkar einn góðan veðurdag, fullyrti pabbi að hann væri sjálfur fæddur í Irlandi. Honum varð ekki skotaskuld úr því, að nefna greifadæm- ið, þar sem hann hafði fæðst, og gat sagt frá ýmsum atburðum, sem gerzt höfðu í bemsku hans heima á Irlandi. Og hann sagði frá af svo lifandi sannfæringu, að meira að segja eg mundi hafa trúað sögum hans, ef eg hefði ekki vitað að hann var fæddur í Ohio. Væri gestur hans frá Skotlandi lék pabbi sama leikinn. Hann velti errunum á tung- unni alveg eins og hreinræktaður Skoti. Stundum lék hann þetta hlutverk sem Svíi eða Þjóðverji. Hann var æfinlega frá sama landi og gesturinn, sem í heimsóknina kom. Eg held að allir þessir menn hafi vitað að hann laug, en þeim þótti ekkert minna vænt um hann fyrir það. Þetta var eitt af því, sem eg skildi aldrei, þegar eg var lítill drengur. Og svo var það mamma. Hvernig gat hún þolað þetta? Oft langaði mig til að spyrja hana um það, en eg þorði það ekki. Það er ekki hægt að spyrja mömmu um slíka hluti. Margt kvöldið lá eg í rúminu mínu uppi á loftinu og heyrði hann segja raup- sögur sínar niðri í stofunni. — Oft voru það sögur frá borgarastyrjöldinni, og þegar hann sagði frá, mátti ætla, að hann hefði tekið þátt í öllum orrustum, sem þá voru háðar. Hann virtist líka hafa verið góðkunningi allra mestu hershöfðingjanna. Einkum hafði hann verið perluvinur Grants, æðsta foringja Norðurríkjanna. Og þegar Grant tókst á hendur að stjórna sókn hers- ins tók hann auðvitað föður minn með sér. „Eg var boðliði í aðalstöðvunum þá, og þá sagði Sam Grant við mig: „Irve,“ segir hann, „án þín get eg ekki verið. Þú verður að koma með mér“.“ Þeir Grant laumuðust stundum á afvik- inn stað til þess að fá sér glas saman í næði. Að minnsta kosti báru sögur föður míns það með sér. Hann sagði til dæmis oft frá deg- inum þegar Suðurríkin gáfust upp. A því stóra augnabliki var Grant hvergi finnan- legur. „Þið kannist auðvitað við það úr bókinni, sem Grant hefur sjálfur skrifað,11 sagði pabbi, „endurminningum hans. Þar hafið þið auðvitað tekið eftir því, að hann heldur því fram, að hann hafi haft höfuðverk, en orðið alheill um leið og hann fékk boðskap- inn um að nú væru Suðurríkjamenn albúnir að mæta berlæraðir í skyrtunni til þess að semja.“ „Jú, þökk fyrir,“ bætti svo pabbi við eftir hæfilega þögn. „Vitið þið hvar hann var? Hann var með mér úti í skógi.“ Alls staðar var leitað að Grant, en hann hafði hlaupið af hestbaki og farið út í skóg, og þar rakst hann á mig. Hann var ataður leiri frá hvirfli til ilja. „Eg sat þarna upp við tré úti í skóginum með flöskuna í hendinni, og kærði mig koll- óttann. Stríðinu var lokið. Við vorum búnir að skaka vindinn úr óvinunum.“ Eftir sögum föður míns að dæma varð hann fyrstur til þess að skýra Grant frá upp- gjafartilboði óvinanna. Hann hafði fengið vitneskju um það frá boðliða, sem af til- viljun hafði riðið fram hjá, og sá boðliði hafði vitað að pabbi var dús við Grant. Þess vegna sagði hann pabba leyndarmálið Og í tilefni af þessu ákváðu þeir, pabbi og Grant, að fá sér brjóstbirtingu í samein- ingu. Og þeir gerðu það svikalaust. En pabbi vildi ekki, að Grant skildi mæta ölvaður þegar hann kæmi til móts við Lee, foringja Suðurríkjamanna. Þess vegna braut hann flöskuna upp við tré. „En þið verðið að þegja yfir þessu,“ bætti pabbi við. „Nú er Grant dauður, og eg kæri mig ekki um að þessi saga komist á flot, enda þótt hún sé dagsönn." Þetta var aðeins ein af raupsögum hans. Auðvitað vissu áheyrendurnir að hann laug, en það varpaði engum skugga á gleði þeirra yfir sögum hans. EGAR PABBI varð gjaldþrota misstum við allt, sem við höfðum undir höndum. Og þegar enginn matur var lengur til í hús- inu fór pabbi að heiman í heimsókn til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.