Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 15

Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 15
Meisfarinn sem iýsti upp veginn í Kína Heimspeki Koníúsíusar réði örlögum heillar þjóðar og er enn í fullu gildi eftir 2500 ár EITT mesta mikilmenni á sviði and- ans, sem uppi hefur verið, var fæddur fyrir svo að segja réttum 2500 árum (um nákvæman fæðingardag er ekki kunnugt). Hann var kennari að ævistarfi, jafnframt því, sem hann var höfundur heimspekikerfis þess, sem mótað hefur sögu Kína frá hans dög- um, náð mikilli útbreiðslu í öðrum hluturn lieims og er lifandi máttur enn þann dag í dag. Enda þótt margir kannist við nafn hans og kunni ef til vill einhver af spakmælum hans, eru hinir þó miklu færri, sem vita hvers konar maður hann var, eða hvernig það mátti verða, að siðakenningar hans náðu svo mik- illi útbreiðslu og urðu jafn langlífar og áhrifaríkar sem og raun ber vitnið. Það eru til margar munnmælasögur um hann, og margt er honum eignað, sem hann aldrei hefur sagt. En mað- urinn Konfúsíus er flestum mönnum óljós mannvera frá fornöld. Það er vel ómaksins vert að gera sér nokkra grein fyrir manninum og hugleiða kenningar hans, sem eftir tvö þúsund og fimm hundruð ár eru enn hagnýttar við félagsieg og sið- ferðileg úrlausnarefni. Og sumar þeirra eru sannarlega jafn mikið í anda nútímans og dagurinn á morgun. Meðal almennings er sú skoðun al- geng,að Konfúsíus hafi verið voldug- ur höfðingi. Sannleikurinn er sá, að vér vitum eigi, hverjir forfeður hans voru. Ættartala hans, þar sem ætt hans er rakin til konunga, kemur ekki frarn í dagsljósið fyrr en löngu eftir hans dag, og verður að teljast mjög vafa- söm. Sjálfur hefur hann sagt: „Þegar eg var ungur, var eg fátækur og naut engra mannvirðinga." í æsku varð hann að sjá sér sjálfur farborða og leggja á sig líkamlegt erfiði, að minnsta kosti framan af. Og á þennan hátt hefur hann vafalaust öðlast þann nána kunnugleika á þjáningum al- þýðunnar, sem gerðu hann að forvíg- ismanni hinna undirokuðu í baráttu þeirra gegn hrokafullum og drottn- unargjörnum aðli. Hann var fæddur í hinu forna ríki Lu, sem er partur af Shantung vorra daga. Um fyrstu ár hans er lítið kunn- ugt, og ekki heldur hvernig hann öðl- aðist menntun sína og gerðist kennari. Persónuleiki hans og hagnýt vizka höfðu djúp áhrif á flesta, sem nokkur kynni höfðu af honum, og brátt safn- aðist um hann hópur lærisveina, sem voru sannfærðir um það, að aldrei hefði annar eins maður verið uppi, frá því mannkynið fyrst hóf göngu sína. Það var heitasta ósk hans, að grund- vallarkenningar hans um stjórnarfar og siðfræði væru teknar til hagnýtrar notkunar. Kennsluna stundaði hann aðeins meðan hann beið þess tækifær- is. Það er almennt fullyrt, að hann hafi verið settur til að gegna þýðingar- miklu embætti, en þetta eru aðeins munnmæli síðari tíma, sem stefna að Joví að gera minningu hans dýrð- lega. Enda þótt þjóðhöfðingjar þeirra 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.