Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 53

Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 53
■bændanna í nágrenninu, þar var honum alltaf tekið tveim höndum. Stundum var hann fjarverandi í margar vikur, en mamma :Stritaði ein heima til þess að metta soltna maga okkar barnanna. Einn góðan veðurdag birtist pabbi máske allt í einu og hafði með- ferðis einhvern mat, t. d. svínslæri, sem ■einhver vinur hans í sveitinni hafði gefið honum. Þá fleygði hann feng sínum á eld- húsborðið með miklum gauragangi og sagði stoltur: „Pabbi er kannske maður til þess að sjá um að börnin hans fái eitthvað að borða.“ Þá stóð mamma hjá og brosti. Aldrei heyrði eg hana mæla önugyrði um pabba all- ar þær vikur og mánuði, sem hann var að heiman án þess að leggja fram einn einasta ■eyri til að kaupa mat fyrir handa fjölskyld- unni. Dag nokkurn heyrði eg mömmu segja nágrannakonu okkar meiningu sína. Ef til vill hefur nágrannakonan verið svo óvarkár, að láta í ljós samúð með mömmu. „O, svei,“ sagði mamma. „Eg kvarta ekki, hann er að minnsta kosti ekki sami mó- hraukurinn og þumbarinn og aðrir karlmenn hérna í götunni. Lífið er aldrei þreytandi eða leiðinlegt þegar hann er nærri.“ Hugur minn var alltaf fullur af beiskju gagnvart föður mínum, og stundum óskaði eg, að hann væri ekki pabbi minn. Það rak jafnvel svo langt, að eg hugsaði mér, að hinn rétti faðir minn væri allt annar maður. Og til þess að bjarga siðferði móður minnar skáldaði eg sögu um hjónaband, sem af ein- hverjum ástæðum varð að halda stranglega leyndu. Eg hugsaði mér, að einhver mikill maður eins og t. d. forstjóri járnbrautar- félags eða þingmaður, hefði gifzt mömmu í þeirri trú, að fyrri kona hans væri dáin, en svo kom í ljós að hún lifði þrátt fyrir allt. Þess vegna urðu þau að halda hjónabandinu leyndu, en þau höfðu ekki komist hjá því að eg fæddist. Eg var ekki sonur þess manns, sem talinn var faðir minn. Einhvers staðar í hinum víðáttumikla heimi lifði mik- ilúðlegur og alvarlegur maður. sem var hinn rétti faðir minn. Það rak svo langt að eg fór að trúa þessum hugarburði mínum meira en til hálfs. En svo kom kvöld, sem eg minnist alltaf. Mamma var ekki heima, ef til vill hefur verið guðsþjónusta í kirkjunni þetta kvöld. Pabbi kom inn úr dyrunum. Hann hafði verið á faraldsfæti í margar vikur. Nú hitti hann mig einan í húsinu. Eg sat við eldhús- borðið og las. Það var rigning og pabbi var holdvotur. Hann sat lengi og horfði á mig án þess að mæla orð. Mér leið illa. Eg hafði aldrei séð nokkurt mannsandlit jafn raunamætt og andlit hans var þá. Hann sat langa stund grafkyrr, en vatnið draup úr fötum hans. „Komdu með mér,“ sagði hann loksins. Eg stóð á fætur og gekk með honum út úr húsinu. Eg var fullur undrunar, en óhræddur. Við gengum eftir forugum veg- inum út úr þorpinu. Vegurinn lá niður eftir dalverpi að vatni, sem var nokkra kíló- metra í burtu. Maðurinn, sem ætíð var van- ur að vera sítalandi var nú þögull sem gröf- in. Eg vissi ekki hvað nú átti að gerast, en einkennileg tilfinning um það, að hér væri eg í návist alókunnugs manns hafði sezt að mér. Eg veit ekki hvort faðir minn hefur ætlast til þess að hafa slík áhrif á mig, en eg hygg síður að svo hafi verið. Vatnið var allstórt. Regnið féll stöðugt í stríðum straumum og öðru hverju heyrðust þrumur og eldingar leiftruðu. Við stað- næmdumst á grasigrónum vatnsbakka, þeg- ar pabbi tók loksins til máls. Rödd hans hljómaði annarrlega í myrkrinu og rigning- unni. „Farðu úr fötunum,“ sagði hann. Eg byrjaði að afklæðast, stöðugt jafn undrandi yfir því sem var að gerast. Þegar birti af næstu eldingu sá eg að pabbi var allsnakinn. Við óðum út í vatnið. Hann tók í hönd mína og dró mig með sér. Eg þagði, ef til vill hef eg verið of hræddur eða of mjög á valdi hinna óvenjulegu hughrifa til þess að geta talað. Fyrr en þetta kvöld hafði eg aldrei orðið þess var að pabbi veitti mér nokkra athygli. „Hvað ætlar hann nú að gera?“ spurði eg sjálfan mig, hvað eftir annað. Eg var léleg- ur sundmaður, en hann lagði hönd mina á öxl sína og lagðist til sunds út á myrkt vatnið. Pabbi var stór og herðabreiður maður og prýðilega syndur. I myrkrinu fann eg hvernig vöðvar hans hnykluðust undir húð- inni. Við syntum þvert yfir vatnið, þar sem það var breiðast og aftur til baka sömu leið til þess staðar, sem föt okkar lágu. Ennþá var stríður stormur og stórrigning. Stundum synti pabbi baksund, en í hvert skipti, sem hann skipti um sund tók hann hönd mína og færði hana til, svo að hún hvíldi stöðugt á öxl hans. Við og við leiftruðu eldingar, og brot úr sekúndu sá eg þá andlit hans greini- lega. A því var stöðugt sami sorgarsvipur- inn og eg hafði tekið eftir heima í eldhús- inu. A milli eldingarleiftranna varð ekki annað skynjað en myrkur, stormur og regn. En í brjósti mínu bærðist tilfinning, sem eg hafði aldrei þekkt áður. Eg fann nálægð pabba. Það var svo und- arlegt. Líkast því að aðeins væru tvær mannverur til í heiminum. Nú fannst mér eg vera nýr maður í nýjum heimi, líkast því, sem mér hefði skyndilega verið varpað út úr skóladrengsheimi mínum, heiminum þar sem eg hafði alltaf blygðast mín fyrir pabba minn. Hann var orðinn blóð af mínu blóði. Við tveir, hann hrausti sundmaðurinn, og eg drengurinn, sem hélt dauðahaldi í öxl hans í myrkrinu, höfðum tengst órjúfandi böndum. Við syntum þögulir, og þegjandi klæddum við okkur og gengum heim. Ljós brann á lampanum í eldhúsinu, þeg- ar við komum inn úr dyrunum í rennvotum fötunum. Mamma stóð í eldhúsinu og brosti við okkur. Eg man að hún kallaði okkur drengi, þegar hún ávarpaði okkur. „Hvað hafið þið nú haft fyrir stafni, drengir?" spurði hún. Pabbi svaraði engu. VINTÝRI kvöldsins hafði byrjað í þögn, þvi lauk einnig í þögn. Pabbi sneri sér við og leit á mig. Svo gekk hann út úr eldhúsinu, og mér virtist persóna hans hafa eignast nýjan, undarlegan virðugleika. Eg gekk upp stigann og inn í litla her- bergið mitt, afklæddist og fór í rúmið. Eg gat ekki sofnað, og eg vildi ekki sofna. í fyrsta sinni á æfinni fann eg, að eg var son- ur pabba míns. Hann var sagnaþulur og skáld eins og eg ætlaði sjálfur einhvern tíma að verða. Vel getur verið að eg hafi hlegið með sjálfum mér þarna í myrkrinu, en hafi það verið, var það vegna meðvitund- arinnar um, að eg mundi aldrei, aldiei fram- ar óska að eg ætti annan föður en pabba minn. Þ. F. þýddi. EINKAFRAMTAKIÐ Á UNDANHALDI Hvergi hafa samvinnufélög átt harð- ari andspyrnu að mæta en í Banda- ríkjunum, þessu gósenlandi einka- framtaksins. Heil blöð hafa verið gef- in út einvörðungu til höfuðs þessari sjálfsbjargarviðleitni almennings, og útvarpsfyrirlesarar hafa haft það fyrir aðalatvinnu að ófrægja samvinnufé- lagsskapinn. Þó er óvíst, að sumt hið merkilegasta í þessum málflutningi taki skrifum íslenzka Morgunblaðsins um samvinnufélagsskapinn fram á stundum. En félagshreyfingar verða ekki stöðvaðar með slíkum tilburðum. Samvinnufélögin í Bandaríkjunum eru í sífelldum vexti, og trúnaðar- menn þeirra njóta vaxandi trausts. Til dæmis um þetta er eftirfarandi frétt í nýlegu fréttablaði Alþjóða- samvinnusambandsins: í september samþykkti öldungadeild Bandaríkjaþings útnefningu Mr. John Carson, sem er einn af forstjórum ame- ríska samvinnusambandsins, í verzlunar- ráð Bandaríkjanna. Útnefningin kom i kjölfar víðtækrar yfirheyrslu þingnefnd- ar. Kom þá í ljós, að mikil andspyrna var uppi gegn því, að Carson fengi þetta ábyrgðarmikla starf, en andstaðan var ekki sprottin af því. að hann væri pers- ónulega ekki talinn vel hæfur til þess, heldur spratt hún af andúð á samvinnu- félagsskapnum. Fram til þessa hafa aðeins fulltrúar einkaframtaksins átt sæti í verzl- unarráði sambandsríkjanna, og segja má því, að útfnefning manns, sem er fulltrúi neytendanna, sé mikill sigur. Eftir að öldungadeildin hafði samþylckt útnefning- una með. 45 atkvæðum gegn 25, lét aðal- forstjóri ameríska samvinnusambandsins svo ummælt: „Útnefning Carsons og sam- þykkt þeirrar ráðstöfunar á þingi er eftir- tektarverð viðurkenning á rétti neytenda í borg og byggð." 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.