Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 10

Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 10
opinberu safna nútímans. í öllum menningarlöndum veraldar eru söfn á vorum dögum fyrirferðarmiklar menningarstofnanir og færa sífellt út kvíarnar. Verkaskiptingin verður æ meiri. Hin gömlu konungsgersema- nöfn báru í sér vísi allra þeirra safna, sem nú skipta með sér verkum og rækta hvert sína sérgrein. Hlutverk þeirra er ekki að fá áhorfandann til að gapa af undrun, heldur fræðast og um fram allt skilja og menntast. Vér íslendingar höfuð orðið allra þjóða síðastir til að stofna söfn og koma á þau viðunandi lagi. Ástæður þessa eru augljósar og auðskildar. Það stafar af almennu ófremdarástandi þjóðarinnar og einkum þeirri ánauð,’ er vér bjuggum við sem hjálenda er- lendrar þjóðar, er svipti oss veraldleg- um og menningarlegum verðmætum. Listgripir vorir frá fyrri öldum hafa eflaust snemma tekið að síast út úr landinu með útlendingum, og margir þeirra munu hafa hafnað í stórum er- lendum söfnuð eða farizt í eigu ein- staklinga. Allir vita, hversu danskir valdhafar rúðu kirkjur landsins dýr- gripum sínum á siðskiptaöld, og þá er hitt ekki síður alkunna, hversu fór um handrit vor, að þau komust flest- öll í eigu erlendra manna og eru enn í safnhillum erlendis, fáum að gagni. En fleira var „ginnt um haf“ en hand- rit vor, þó að sjaldnar sé um talað. Þegar landið var gersópað að handrit- um, kom röðin að forngripunum. í byrjun 19. aldar og jafnvel fyrr vaknaði víða um lönd ríkur áhugi á safna ýmsum minjagripum fortíðar- innar öðrum en fornum bókum, söfn voru sett á laggirnar og fornminja- fræði og fornleifafræði ruddu sér braut sem sjálfstæðar fræðigreinar og eignuðust gáfaða og ötula forgöngu- menn. Hreyfing þessi varð mjög vold- ug í Danmörku, og beindist áhugi danskra fræðimanna ekki síður að ís- landi en öðrum löndum Danakon- ungs. Árið 1817 sendi danska fom- leifanefndin spurningar til allra ís- lenzkra presta um fornminjar og forn- gi'ipi í sóknum þeirra. í skýrslum prestanna, sem em geymdar í danska þjóðminjasafninu, eru saman komnar margar og merkar heimildir um forn- ar minjar, sögustaði, álögubletti o. fl., en þar eru líka frásagnir af fjölmörg- um íslenzkum þjóðminjagripum, einkum kirkjugripum, enda var ein spurningin beinlínis um þetta efni. Meðal annars á grundvelli þessara skýrslna hófst síðan mikill útflutning- ur íslenzkra merkisgripa til safnsins í Kaupmannahöfn, og eru til um þetta góðar heimildir. Meðal þeirra gripa, er um þetta leyti fóru utan, voru t. d. stóll Þórunnar Jónsdóttur á Grund og Valþjófsstaðahurðin, sem Danir hafa þó síðan afhent oss sem gjöf. EFTIR ÞVÍ sem á leið 19. öld, færð- ist íslenzk þjóðarvitund og metn- aður í aukana, og fór mönnum þá að blæða í augum hinn gegndarlausi út- flutningur íslenzkra þjóðgripa. Þá kviknaði hugmyndin um íslenzkt forngripasafn, og kom hún fyrst fram opinberlega, er Sigurður Guðmunds- son málari birti hugvekju sína til ís- lendinga í Þjóðólfi 24. apríl 1862, nm að stofna „þjóðlegt forngripasafn". Og 8. janúar 1863 ritaði Helgi Sig- urðsson á Jörfa (síðar prestur á Set- bergi og Melum) um sama efni og bauðst til að gefa landinu 15 merka gripi, er hann sjálfur átti, og skyldu þeir verða vísir safnsins. Hinn 24. fe- brúar 1864 tjáðu stiftsyfirvöldin sig reiðubúin til að taka á móti gjöf Helga, og er þetta því talinn fæðing- ardagur forngripasafnsins, sem nú heitir Þjóðminjasafn íslands. Forngripasafninu áskotnuðust óðara margir góðir gripir, og eflaust hefur stofnun þess komið í veg fyrir útflutn- ing margra íslenzkra minja. En það barðist lengi í bökkum, danska fjár- veitingavaldið vildi því enga ásjá veita, og húsnæðisleysi svarf svo mjög að því, að við sjálft lá, að riði því að fullu. Jón Árnason var umsjónarmað- ur safnsins frá upphafi til 1882, en með honum var einnig Sigurður mál- ari umsjónarmaður þess til dauðadags 1874, og eftir hann Sigurður gullsmið- ur Vigfússon, er varð einn forstöðu- maður þess frá 1882 til 1892, er hann lézt. Þá varð forstöðumaður Pálmi Pálsson kennari til 1896, þá Jón Jak- obsson til 1907, en í ársbyrjun 1908 varð Matthías Þórðarson forstöðu- rnaður safnsins, og 1. júlí 1908 var hann skipaður fornminjavörður sam- kvæmt lögum um verndun fornminja, frá 16. nóv. 1907. Var fornminjavörð- urinn í senn eftirlitsmaður fornminja í landinu og forstjóri safnsins, og er þetta fyrirkomulag enn í gildi. Engin tök eru á að lýsa hér hrakn- ingaferli og þróunarferli safnsins. — Fyrst var það til heimilis á dómkirkju- loftinu, síðan var flúið með það í borgarastofuna í hegningarhúsinu, þaðan í alþingishúsið, þaðan í lands- bankahúsið og loks 1908 á loftið í landsbókasafnshúsinu, þar sem það er enn. Vitanlega eiga margir góðir menn sinn þátt í, hve giftusamlega því hefur reitt af á frumbýlingsárum sín- um og öllum forstöðumönnum sínum á það mikið upp að inna, en engum mun þó óréttur gjör, þótt fullyrt sé, að þar beri tveir menn af, Sigurður málari og Matthías Þórðarson. Sigurð- ur var faðir safnsins, og fórnfýsi hans og ósérplægni á fyrstu árum þess verð- ur honum aldrei ofþökkuð, og varla mun of fast að orði kveðið, þótt sagt 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.