Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 57

Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 57
Hetilng barnaföt. — Sjá grein um þetla efni á bls. 44 og 45. Þ JÓÐMIN J AS AFNIÐ (Framhatd af bls. 14) farið með safnið, og skal ekki að óreyndu ætlað, að á annan veg fari. Þjóðminjasafnið er ríkisstofnun, og ber því ríkinu að sjá því fvrir nauðsyn- legu fé. En hitt er ekki úr vegi að minna á, að víða um lönd njóta söfn, þótt ríkiseign séu, veglyndis auðugra manna, sem telja sig hafa sóma og gleði af að styrkja þau af auðlegð sinni. Oft gerist þetta einmitt í sam- bandi við nýbreytni í fyrirkomulagi safnanna, er þau eru venju fremur fjár þurfi. Á íslandi eru margir auð- ugir menn og félagasamtök, og ekki væri goðgá að láta sér til hugar koma, að meðal þeirra kynni safnið að geta eignazt veglynda velunnara, ei hlú vildu að og efla ákveðnar deildir þess. Það er að lokum Ijúf skylda að minnast með þakklæti allra þeirra, sem verið hafa Þjóðminjasafninu inn- an handar með miklum og margvís- legum gjöfum fyrr og síðar. Árið 1930 sendu bæði Norðmenn og Danir oss að gjöf marga forkunnar góða íslenzka gripi úr söfnum sínum, og nokkrum árum síðar gáfu Norðmenn enn fleiri. Áður hefur verið minnzt á norsku safngjöfina, sem enn er ókomin, og nú síðast hefur borgarsafnið í Exeter á Englandi ákveðið að gefa oss ágætt safn íslenzkra gripa, er Pike Ward fiskkaupmaður safnaði hér á landi um síðustu aldamót og arfleiddi Exeter-borg að. Hefur séra Jón Auð- uns dómkirkjuprestur haft milligöngu um þetta við safnstjórann, dr. Churc- hill Blackie. Enn fleiri útlendir menn og söfn hafa sæmt safnið gjöfum, og er rausn þessi fagurt fordæmi, sem fleiri fara vonandi eftir í framtíðinni. En mest á safnið þó undir íslenzkri alþýðu um land allt. Svo hefur þetta verið og mun verða. Þjóðminjasafn- inu ber auðvitað að vera málsvari ís- lenzkra fornfræðivísinda, en sýningar- starfsemin er það, sem mest ber á og hér hefur einkum verið haft í huga. Safnið á ekki að vera klausturklefi handa þeim, er flýja vilja mannheima og gleyma samtíð sinni yfir dauðu grúski. Það á að vera handa alþýðu manna á íslandi, þar á hún að geta skoðað sjálfa sig í skuggsjá fortíðar- innar og um leið skilið betur kjör sín og örlög, líf og sögu þjóðarinnar í landinu. HEIÐIN JÓL OG KRISTIN (Framhald af bls. 8) var slegið upp mannfagnaði og vakað alla nóttina. Voru þessar nætur nefnd- ar vökunætur og dansarnir vikivakar, en samkoman var nefnd gleði eða jólagleði. Fóru allir, sem vettlingi gátu valdið og enda þótt harðsótt væri. Um það er sagan af djáknanum, er afturgenginn sótti unnustu sína að Bægisá, til að fara með hana til jóla- gleðinnar á Myrká. Hinir fjölda- mörgu vikivakasöngvar, sem varðveizt hafa, geyma og sína sögu um eðli þess- ara skemmtana, og er enginn efi á því, að stundum hefur gerzt sukksamt á samkomum þessum, líkt og sagnir ganga um á Jörfa og Þingeyrum, og hafa það verið fleiri en álfar, sem ógætilega stigu faldafeykinn. Var stundum jafnvel dansað í sjálfum kirkjugarðinum eða kirkjunni, enda þótt þá væri hætt við að hamrömm öfl slægist í leikinn og kirkjan sykki, sam- an ber söguna um dansinn í Hruna. í jólagleðinni lifðu lengi hinar römmu taugar frjósemisdýrkunarinn- ar. Þar brauzt fram undan fargi myrk- ursins hin villta og hamslausa lífsþrá og gleðifýsn, sem kúlduð var og byrgð undir fátækt og armóði hversdags- stritsins. Er talið, að þessar gleðir hafi tíðkazt fram á 18. öld, þrátt fyrir harð- skeyttar umvandanir prestastéttarinn- ar, sem ekki sá í þeim annað en ósið- læti og spilverk djöfulsins. En svo fór að lokum, að þær hurfu einnig, um það leyti sem þjóðin var við að deyja úr hor, þó að þær hafi haldizt með öðrum og glaðværari þjóðum, þar sem lífskjörin voru rýmri. Og reynd- ar er nú aftur svo komið með vorri þjóð, að ekki skortir vikivakana, þó að hvergi örli framar á trúarbrögðum í sambandi við þá, og eigi sé gengið til tíða á undan né eftir. Eru menn og hættir að fara með hin fögru viðlög: Setjum gullsöðulinn á gangvarann væna, við skulum ríða i lund þann hinn græna. Eða: Úti ert þú við unnir blár, en eg er seztur að dröngum. Eða: Fagrar heyrði eg raddimar úr Niflungaheim, gg get ekki sofið fyrir söngvunum þeim. í staðinn er komin negrasönglist og skáldskapur eftir því. jólahelgin forn og ný, sem bundin var dularmætti tilvemnnar er óðum að hverfa .„Flúinn er dvergur, dáin hamratröll". „Enginn sér á sumarkvöldum svífa huldufólk um dalinn". Heitstrengingarnar era horfnar. Óðinn þeysir ekki framar á Sleipni í stormbylnum, og gleymdur er Freyr og gullinbursti hans. Þó halda jólin áfram að vera ljóss- ins og gleðinnar hátíð, eins og þau ávallt hafa verið frá ómunatíð. í ást- inni á ljósinu og í leit hamingjunnar mætist heiðinn dómur og kristinn. En það, sem kristin kirkja vildi kenna, var að finna í ljósinu æðra ljós og í gleðinni æðri gleði. Ef til vill er þó engin kynslóð fjarlægari því að skilja þetta en sú, sem nú lifir. 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.