Samvinnan - 01.10.1968, Page 3

Samvinnan - 01.10.1968, Page 3
Kirkjubóli í Bjarnardal Herra ritstjóri! Það gladdi mig að sjá i Sam- vinnunni greinargerð frá gagn- rýnendum dagblaðanna undir fyrirsögninni „Fimm beztu bækur ársins 1967.“ Þeir taka þó fram, að ekki vilji þeir úr- skurða, hverjar séu beztu bækur ársins, heldur tilnefna þær, sem orðið hafi þeim til mestrar ánægju eða minnis- stæðar á annan hátt. Allir þessir gagnrýnendur nefna bókina „Ástir samlyndra hjóna“ eftir Guðberg Bergs- son; þrír nefna hana fyrst allra bóka. Þetta þótti mér for- vitnilegt, því að ég hafði ný- lokið lestri hennar og ekki fundizt mikið til um hana. Ég fann að vísu, að höfundurinn var ritfær í bezta lagi, og stíll hans virtist taminn til mis- munandi blæbrigða, en að öðru leyti fór ég á mis við ágæti bókarinnar. Rétt er að geta þess, að mér leiddist bókin og las hana því ekki eins vel og þær bækur, sem mér verða til unaðar og ánægju. Nú er ég roskinn útkjálka- maður, ekki mjög lesinn og hef jafnan verið íhaldssamur í bókmenntalegum efnum. Mér duldist því ekki, að ég hafði litla hæfileika til að njóta stórra nýjunga í bókmenntum. Þess vegna las ég vandlega um- sagnir ritdómaranna í Sam- vinnunni, en það dugði mér ekki. Allir fara þeir lofsamleg- um orðum um bókina, mis- munandi miklum að vísu. Sum þessara orða eru hástemmd og upphafin, en ég veit ekki, hvað þau eiga við. Ég skrifa þessar línur til þess að biðja um betri leiðbeiningar og leggja nokkr- ar spurningar fyrir ritdómar- ana, hvern fyrir sig. Vænti ég þess, að þeir gefi sér tíma til að svara þessum spurningum, enda þykist ég vita, að svör þeirra muni verða mörgum öðrum en mér til skilnings- auka, ekki einungis á bókinni, heldur einnig á ýmsum fyrir- bærum í íslenzku þjóðlífi. Tel ég því, að 2 eða 3 opnum í Samvinnunni væri vel varið til þess að skýra nánar þessa merkilegu bók. Árn-i Bergmann segir í sinni greinargerð: „Það er erfitt að finna annan höfund, sem hafi íslenzkan veruleika betur á valdi sínu; furðulegt næmi og enn ótrúlegra minni gera höf- undi mögulegt að rekja jafn- vel minnstu hræringar í þjóð- lífi síðastliðinn aldarfjórðung rétt eins og hann hefði þær allar í vösunum. Og ekki að- eins rekja þær heldur taka þær undir magnaðan og sér- stæðan skilning." Nú spyr ég Árna Bergmann: Hvar í bókinni eru breytingar og hræringar í þjóðlífi raktar verulega vel? Það væri gott að nefna 3 eða 4 dæmi. Og — hvað er það annars „að taka hræringar í þjóðlífi undir magnaðan skilning"? Mér þætti vænt um, ef Árni Bergmann gæti bent mér á, hvar trúarlegum hræringum væru gerð góð skil í kaflanum um biskupinn og prestana í 7. atriði. Ég fann það ekki. Hins vegar las ég þar margorðar lýsingar á því, hvernig tungur og tennur tveggja biskupa hrærðust á mismunandi hátt, þegar þeir tuggðu matinn sinn. En það teljum við ekki til þjóðlífshræringa. Andrés Kristjánsson virðist ekki hrifinn af Ástum sam- lyndra hjóna í heild. Hann talar um umbrot höfundar í 3

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.