Samvinnan - 01.10.1968, Blaðsíða 4

Samvinnan - 01.10.1968, Blaðsíða 4
 HAGSYN HÚSMÓÐIR NOTAR leit að nýjum leiðum, forvitni- leg umbrot, sem ekki skera þó úr um framtíðarveginn. En hann segir: „— Þó má á köfl- um eygja jákvæða vegagerð í þessum samtengdu atriðum, sem sum eru haglegar smásög- ur, og þá sýnir hann lesand- anum veruleika samtíðarinn- ar ósjaldan af alveg nýjum sjónarhóli í skarpri birtu og nakinni hörku.“ Nú spyr ég Andrés Kristj- ánsson: Hverjar eru þessar haglegu smásögur? Og hvar í bókinni er verulelki samtíðar- innar sýndur af alveg nýjum sjónarhóli? Mér þætti gott að fá nefnd nokkur dæmi. Þá sjaldan ég komst á nýjan sjón- arhól við lestur bókarinnar, eins og t. d. í ævintýri Katrín- ar og kúlunnar, var mér ekki sýndur neinn veruleiki. Ég fann ekki heldur fyrir skarpri birtu né nakinni hörku. Mér virtist lengst af við lesturinn að verið væri að segja frá með þjálfuðum og glottandi kaffi- húsavörum. Eiríkur Hreinn Finnbogason segir í Samvinnunni: „Þessir tólf þættir einkennast öðru fremur af hinu nístandi, skarp- sýna auga höfundar fyrir ýms- um lítt aðlaðandi veilum í mannlífi nútímans. Höfund- urinn hefur magnaða stílgáfu og er bæði miskunnarlaus og hæðinn. Bókin er ófögur eins og þau lífssvið eru, sem hún fjallar um.“ Ég spyr Eirík Hrein: Hver eru þau ófögru lífssvið, sem fjallað er um í bókinni? Það gæti þá komið fram, hvað er eiginlega hægt að kalla lífs- svið. Ég fann það vel við lest- urinn, að höfundurinn hefur gaman af að segja frá ýmsu ófögru á þann hátt, að vel má segja, að hann sé miskunnar- laus og hæðinn. En það minnti mig meira á samtíning held- ur en hitt, að fjallað væri um lífssvið. Þá kemur Erlendur Jónsson. Hann segir: „Guðbergur er gæddur auga, sem allt sér. Það er líka manntak að kasta hrá- blautum hanzka framan í hræsnaraskarann — þá sem sí og æ reyna að bæla sérhvern hlut niður í hægindi sinna rósrauðu blekkinga og telja sér og öðrum trú um, að svínaríið í mannlífinu sé ekki til, alla götu meðan því sé ekki flíkað á prenti. Guðbergur sendir þeim þá sneið, sem þeir hafa gott af að kyngja." Þetta segir Erlendur. í bernsku minni lærði ég í Helgakveri, að guð einn væri alskyggn. Nú er loksins kom- inn maður með auga, sem allt sér. Það fer vel á því, að hann heitir Guðbergur. Ég býst við, að ég sé einn í hræsnaraskaranum, sitjandi í hægindi rósrauðra blekkinga. Ég hef meira að segja þá trú, að ekki verði allt að veruleika, þó að einhverjum detti í hug að setja það á bók. Mér er að vísu ljóst, að ég er fávís Vest- firðingur og veit ekki mikið, hvernig það líf kann að vera, sem ég hef ekki þekkt. Þess vegna deili ég ekki við neinn Fái ég aö velja tek ég BLANDAÐ GRÆNMETI OG GRÆNAR BAUNIR FRÁ Heildsölubirgðir: Birgðastöð SÍS. Eggert Kristjánsson & Co. h.f. Kjötiðnaðarstöð KEA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.