Samvinnan - 01.12.1984, Blaðsíða 25
Eræðslufundur 1984:
Hvernig er hægt að bæta
fræðslustarf samvinnumanna?
Fræðslufundur 1984 var haldinn
mánudaginn 24. september síð-
astliðinn í fundarsal Samvinnu-
Irygginga við Ármúla. Fundurinn
nófst klukkan tíu árdegis og sóttu
aann 30 fulltrúar, 20 frá kaupfélögun-
upr> 5 frá Sambandinu, 2 frá Sam-
vmnuskólanum, 2 frá samvinnustarfs-
monnum og 1 frá Samvinnutrygging-
Um- Fundarstjóri var kosinn Gunn-
laugur P. Kristinsson, fræðslustjóri
KEA, og fundarritari Gylfi Gröndal.
Fyrsti dagskrárliður fundarins var
»Af vettvangi kaupfélaganna“ og
skýrðu þar fulltrúar kaupfélaganna í
stuttu máli frá fræðslustarfinu hver
ujá sínu félagi.
® Hvað kostar fræðslustarf Sam-
bandsins?
Áð loknum hádegisverði flutti Kjartan
Kjartansson framkvæmdastjóri
l’ræðslu- og kaupfélagadeildar ýtar-
*egt erindi undir heitinu „Af vettvangi
^arnbandsins" og ræddi þar vítt og
breitt um stöðu fræðslumála, helstu
erfiðleika í sambandi við þau, hug-
myndir til úrbóta og verkefni fram-
undan.
í erindi Kjartans kom fram, að
(tostnaður við fræðslustarf Sambands-
!ns síðustu fjögur árin var 32.4 milljón-
lr króna. Bróðurparturinn af þeirri
uPphæð fór til skólamála eða 24.2
millj.
og er þá átt við Samvinnuskól-
unn að Bifröst, framhaldsdeild hans
nér í Reykjavík og námskeiðahald.
Ánnar kostnaður við fræðslustarfið
Var 8.2 millj., þar af 4.4 milljónir
Vegna útgáfu Samvinnunnar. Varð-
andi síðasttalda liðinn ber að hafa í
Uuga, að tekjur vegna auglýsinga og
askriftargjalda koma á móti; þannig
Var framlag Sambandsins til Samvinn-
unnar á árinu 1983 aðeins 500 þúsund
krónur.
. Ef tekið er tillit til verðlagsþróunar
* landinu hefur kostnaður við
mæðslumál verið svipaður þessi fjögur
ar eða sem hér segir:
1982 ........................ 8,8 millj. kr.
1983 ........................ 14,3 millj. kr.
Kjartan sagði, að flestir væru sam-
mála um, að hlutverk Samvinnuskól-
ans væri lang mikilvægast og því
eðlilegt að mest fé rynni til hans.
Miklu varðaði, að nýir og nýtir sam-
vinnumenn kæmu til starfa jafnt og
þétt, svo að þessum fjármunum væri
vel varið. Fullyrðing Morgunblaðsins
á liðnu sumri þess efnis, að Samvinnu-
skólinn væri til trafala fyrir hreyfing-
una væri fráleit, enda hefði Jón Sig-
urðsson skólastjóri hrakið hana fljótt
og vel.
Kjartan vék að námskeiðum Sam-
vinnuskólans, sem væru orðin viða-
mikið starf og með ólíkindum hve
skólinn hefði afrekað miklu á þeim
vettvangi. Frá árinu 1977, þegar aðal-
fundur Sambandsins tók sína happa-
sælu ákvörðun varðandi fræðslumál,
hefðu um 400 námskeið verið haldin
og um 7000 manns sótt þau. Á síðast-
liðnu ári hefðu verið haldin 55 nám-
§keið, sum á Bifröst en önnur hjá
kaupfélögum víða um landið.
Hlutverk
Samvinnuskólans er
lang mikilvægast og
því eðliiegt, að mest
fé renni til hans.
Frá Fræðslufundi samvinnumanna
1984, en hann sóttu þrjátíu fulltrú-
ar víðs vegar að af landinu. í
ræðustóli er Kjartan F. Kjartans-
son, framkvæmdastjóri Fræðslu-
og kaupfélagadeildar Sambandsins.
1980
1981
3.7 millj. kr.
5.7 millj. kr.
25