Samvinnan - 01.12.1984, Blaðsíða 80
Frá kaupfélagsstjórafundi:
Verja þarf fé til að vinna
að nýsköpun í atvinnulífinu
Kaupfélagsstjórafundinn sátu að
þessu sinni nánast allir kaupfé-
lagsstjórar landsins, svo og
stjórnarmenn Sambandsins, forstjóri
og framkvæmdastjórar þess og sam-
starfsfyrirtækjanna, og nokkrir
starfsmenn. Fundurinn fór vel fram að
vanda, og urðu þar miklar og málefna-
legar umræður um mörg efni sem
snerta samvinnufélögin. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra var
gestur fundarins og flutti þar ræðu.
Verslunarmálin voru sérstakur dag-
skrárliður á fundinum, en framsögu
um þau höfðu þeir Kjartan P. Kjar-
tansson frkvstj. Fræðslu- og kaupfél-
agadeildar, Hjalti Pálsson frkvstj.
Verslunardeildar og Axel Gíslason
aðstoðarforstjóri.
• 24,29% veltuaukning
Erlendur Einarsson forstjóri gaf að
vanda yfirgripsmikla skýrslu um rekst-
ur og afkomu Sambandsins fyrstu níu
rnánuði þessa árs, og einnig fjallaði
hann um þróun og framvindu efna-
hagsmála í landinu í því sambandi.
Hann gat þess m. a. að fyrstu níu
Steingrimur Hermannsson torsætisrao- , -J?, t ■'
herra ræddi stöðu efnahags- og at- manuði arsins væri velta Sambandsms
vinnumála í ræðu sinni. (Ljósin. Krist-
ján Pétur Guðnason).
orðin 6.379 milj. kr., sem væri 24,2%
aukning frá sama tímabili á síðasta
ári. Veltuaukningin hefur orðið mest
hjá Búvörudeild, og stafar það af
miklum kjötútflutningi á þessu tíma-
bili. Þá hefur orðið aukning í frystingu
hjá Sambandsfrystihúsunum. Nokkrir
erfiðleikar hafa verið í rekstri Iðnað-
ardeildar á Akureyri undanfarið, sem
stafa m. a. af óhagstæðri gengisþróun
og sölusveiflum í garni, en unnið er að
því af fullum krafti að sigrast á þeim.
I lok ræðu sinnar vék Erlendur að
hagræðingarmálum rekstrarins, sem
vinna yrði ötullega að, en þýðingar-
mest væri þó að huga vel að því að fá
dugmikla starfsmenn til starfa.
Tryggja þyrfti samvinnufélögunum
dugmikið starfsfólk og gera félögin að
eftirsóttum vinnumarkaði. Þangað
þurfi að veljast til starfa fólk sem hafi
áhuga og metnað fyrir hönd samvinnu-
félaganna.
• Nýjar atvinnugreinar
Steingrímur Hermartnsson forsætis-
ráðherra ræddi stöðu efnahags- og
atvinnumála í ræðu sinni. Hann benti
á að síðustu ár hefðu menn kannski
lifað í voninni um betri aflabrögð og
batnandi afla. Núna væri það stað-
reynd að sjór færi hlýnandi og þorsk-
göngur vaxandi, sem lofaði vissulega
góðu. Menn deildu oft á það að
fiskiskipaflotinn væri of stór, en hafa
þyrfti í huga að ykist aflinn þ^rfti á
fleiri skipum að halda, og við Islend-
ingar mættum ekki falla aftur í þá
gryfju að vanrækja endurnýjun fiski-
skipaflotans. Varðandi landbúnaðinn
harmaði forsætisráðherra að ekki
hefði gengið hraðar en raun bæri vitni
að gera nauðsynlegar breytingar á
honum. Þetta snerti fyrst og fremst
breytingar á framleiðslu og upptöku
nýrra búgreina. í þessu sambandi væri
loðdýrarækt þýðingarmikil, því að
hún lofaði mjög góðu. Vinnslustöðv-
arnar yrðu að bregðast fljótt og vel við
breytingum af þessu tagi, m. a. í
fjárfestingum sínum. Þegar til lengri
tíma væri litið þyrfti að renna fleiri
80