Samvinnan - 01.12.1984, Blaðsíða 38
Mínir vinir
fara fjöld . . .
skoðanir síns tíma, og vafalaust vegið
margan manninn. En nú er þetta allt í
einu orðið syndsamlegt. Hann hefur
skyndilega á samviskunni mörg
„syndagjöld“ sem áður fyrr voru
hetjudáðir. Með þennan syndabagga
þarf hann nú að stíga fyrir „dómara
allra tíma“. Skiljanlega er hann ugg-
andi, en hann tekur því með stillingu.
í því felst kannski mesti hetjuskapur
hans.
# Þrjár þýðingar á ensku
Annarserþað aðaltilefni þessagrein-
arstúfs að fyrir skömmu vildi svo til að
ég var að horfa eftir erlendum þýðing-
um, sem til eru, á vísum og kvæðum
eftir Bólu-Hjálmar. Þá rak ég mig á að
af þessu erindi eru til ekki færri en
þrjár þýðingar á ensku.
Ég reiði mig á að það sé rétt, sem
margir halda fram, að meginþorri
íslendinga sé nú orðið meira eða
minna læs á enska tungu. Af þeim
ástæðum flaug mér í hug að einhverj-
um gæti þótt sér vera akkur í að fá að
sjá þær allar á sama staðnum.
Þessar þýðingar hafa allar birst á
prenti áður, en ekki hver við hlið
annarrar fyrr en hér. Sú fyrsta er gerð
af vestur-íslenskum ljóðaþýðanda,
Guðmundi J. Gíslasyni (Gudmund J.
Gislason). Hann var læknir sem frum-
orti nokkuð á ensku og þýddi einnig á
hana íslensk ljóð. Þýðing hans birtist
í bók sem kom út 1930 í Reykjavík
(ljósprentuð 1956) undir heitinu Ice-
landic Lyrics, Originals and Transla-
tions, og annaðist Richard Beck útgáf-
una. Aftur var þýðing Guðmundar
svo prentuð 1969, í bók gefinni út af
menntamálaráðuneytinu hér heima,
og heitir hún An Anthology of Ice-
landic Poetry. Þeirri útgáfu ritstýrði
Eiríkur Benedikz. Þessi þýðing er
svohljóðandi:
Deaths
Friends are taken from my sight,
Death has claimed them in the fight,
I may follow e’en tonight,
With cloven shield and helmet, bright,
Shattered mail-coat, broken sword and sin’s
dark blight.
Einhverra hluta vegna get ég ekki sagt
að ég sé gagntekinn af þessari þýð-
ingu. Hún má þó kallast nokkuð
nákvæm; hernaðarandanum í íslenska
erindinu er vel til skila komið og
sömuleiðis hinum hógværa hljómi
þess. Orðið „blight“ er í orðabók
minni þýtt „evil influence of obscure
origin“, þ. e. eins konar ill áhrif af
KAUPFÉLAG HAFNARFJARÐAR
óskar starfsfólki og viðskiptavinum
GLEÐILEGRA JÓLA
Þökkum gott samstarf og viðskipti
á liðnum árum
KAUPFÉLAG HAFNARFJARÐAR
Hafnarfirði
Sendum öllum viðskiptavinum og
starfsfólki beztu óskir um
GLEÐILEG JÓL
og farscelt komandi ár
Þökkum gott samstarf á liðnum árum
KAUPFÉLAG LANGNESINGA
Þórshöfn
38