Samvinnan - 01.12.1984, Blaðsíða 66
Með fiðluna
á bakinu
i
látum fyrir kennslustörf hans og org-
anistastörfin, enda mun hann hafa
unnið hörðum höndum fyrir sér og
sínum með því að róa til fiskjar og
stunda búskap í frítímum sínum. Það
sýnir áhuga hans á að efla og glæða
tónlistariðkun norðanlands að hann
skrifaði bæjarstjórninni bréf 25. maí
1895, þar sem hann reifar þá hugmynd
að fá styrk frá alþingi til að kenna
mönnum ókeypis á orgel og af bréfinu
má sjá að hann hefir leitað til þing-
manna að ljá málinu lið. Þetta hafðist
fram, og Magnús fékk síðar styrk á
fjárlögum til kennslunnar, en varð
jafnan að sækja um hann frá einu
þingi til annars.
Bréfið er svo merkileg heimild um
skoðun hans á þessu máli að rétt er að
birta það í heild, en það hljóðar svo:
Eg vil leyfa mér hér með að fara þess
á leit við hina háttvirtu bæjarstjórn að
hún vildi á einhvern hátt styðja að því
að alþingi veiti mér dálítinn árlegan
styrk til þess að kenna ókeypis org-
elspil, eg hefi skrifað nokkrum þing-
mönnum einungis til að sýna þeim
fram á að nauðsynlegt væri að kennsla
í þeirri grein væri fullkomnari en nú á
sér víða stað, þar sem jafnvel menn
sem enga tilsögn hafa fengið, fást við
að kenna öðrum, og svo er hver tekinn
góður og gildur sem býður sig fram
sem organista.Fengist nú þessi styrkur
þá mundi orgelsspil útbreiðast full-
komnara, því þá fengju þeir einir fría
kennslu sem væru hæfir til að verða
sæmilega að sér og um leið hlytu þeir
að verja nægilega löngum tíma til
námsins. Hvert sem nú þessi styrkveit-
ing væri sanngjörn í tilliti til þess hvað
eg hefi leitast við að útbreiða og efla
sönglistina, þá er það víst að Norður-
land hefir orðið mjög svo útundan þar
sem Jónas Helgason hefur 600 kr.
árlega fyrir að kenna ókeypis, svo það
sýnist sanngjarnt að þessi styrkur
fengist í tilliti til Norðurlands.
Akureyri 25. maí 1895
Virðingarfyllst
M. Einarsson.
• Beðið um lífvænleg laun
Nokkru áður skrifaði hann bæjar-
stjórninni um kjör sín á þessa leið:
Eins og hinni háttvirtu bæjarstjórn
er kunnugt eru laun mín sem organista
hér við kirkjuna 80 kr. og kennslulaun
mín við barnaskólann hér 56 kr., alls
136 kr. um árið, en eins og hver maður
getur séð, eru laun þessi svo lítil, að
eigi er hugsandi til að nokkur maður
8
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum
GLEÐILEGRA JÓLA
Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum
árum
PÖNTUNARFÉLAG ESKFIRÐINGA
Eskifirði
GLEÐILEG JÓL
FARSÆLT NÝTT ÁR
Þökkum gott samstarf á liðnum árum
KAUPFÉLAG DÝRFIRÐINGA
Þingeyri
66