Samvinnan - 01.12.1984, Page 42

Samvinnan - 01.12.1984, Page 42
Samvinnan kynnir bókina A líðandi stund eftir Hjört Hjartar Er Sambandið auðhringur? Sambandið hefur gefið út bókina ,,Á líðandi stund“ eftir Hjört Hjartar. Þessi bók er sjóður þekkingar um sögu samvinnuhreyfingarinnar, enda er höfundurinn margreyndur forustumaður, sem ungur gekk í þjónustu hreyfingarinnar og hefur helgað henni alla krafta sína, áhuga og hollustu. Hjörtur Hjartar er fæddur 9. janúar 1917 á Þingeyri við Dýrafjörð, sonur hjónanna Sigríðar Egilsdóttur og Olafs R. Hjartar járnsmiðs. Strax að loknu prófi í Sam- vinnuskólanum 1937 gerðist hann kaupfélagsstjóri, fyrst hjá Kaupfélagi Önfirðinga á Flateyri, en síðan Kaupfé- lagi Siglfirðinga. Árið 1952 varð hann framkvæmda- stjóri Skipadeildar Sambandsins og gegndi því starfi til ársins 1976. Að loknum löngum starfsdegi tók Hjörtur sér penna í hönd og skrifaði reglulega greinar í Tímann, sem nú hefur verið safnað saman í þessa bók. Hér er málstaður samvinnumanna skýrður og mál þeirra flutt á ljósan, hnitmiðaðan og öfgalausan hátt í almennum umræðum á líðandi stund á árunum 1977 - 1981. Efnismeðferð er fersk og lifandi og tungutakið hreint. Petta er bók, sem ástæða er til að fagna og kemur að gagni í umfjöllun um samvinnumál í náinni framtíð; verður að liði í þrotlausri baráttu samvinnumanna fyrir bættum kjörum almennings og betra mannlífi í landinu. Hér á eftir fer stuttur kafli úr bókinni. Rökræður um þjóðfélag okkar, gerð þess og skipan, eru nauð- synlegar. Þær geta skilað mark- verðum árangri sé að þeim staðið með umbótahugarfari og heiðarlegar til- raunir gerðar til að skilgreina og skoða og leita nýrra leiða til úrbóta, þar sem þeirra er þörf og hægt er við að koma. Samvinnustarfið og samvinnuhreyf- ingin hefir oft verið nefnd í daglegu tali áhugamanna um þjóðmál að undanförnu. Ég segi nefnd en ekki rædd vegna þess, að meira hefir borið á stóryrðum en rökræðum. Hugtaka- ruglingur og fullyrðingar hafa setið í hásæti í stað rólegrar hugsunar. Slík vinnubrögð geðjast mér lítt. Ofstækis- fullur áróður er varhugaverður. „Auðhringur - auðhringur" er hrópað nú og þar með á að vera búið að dæma og útskúfa Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga og öllum sam- vinnustarfsmönnum í landi okkar. Þetta minnir óhugnanlega á aðferð, sem notuð var í Þýskalandi á árunum 1930 til 1940. Þá var hrópað: Gyðingur - Gyðingur. Allur vandi þjóðfélagsins átti að vera frá þeim runninn; allt sem miður fór þeim að kenna. Og með hrópyrðum tókst að rugla svo skyn og dómgreind mikils hluta heillar þjóðar, að til hörmunga leiddi. Við bætum ekkert í okkar þjóðlífi með að taka upp hliðstæð vinnubrögð. Við skulum hins vegar ekki víkjast undan því að ræða gerð og skipan þjóðlífsþátta. Undan því skorast sam- vinnumenn ekki. 42

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.