Samvinnan - 01.12.1984, Síða 44
Er Sambandið auðhringur?
Pegar vel hefur
árað hjá
Sambandinu,
hefur það skilað
til baka til
aðildarfélaga sinna
myndarlegum
upphæðum.
hrekja sig af hólmi. Þeirra sjónarmið
eiga í engu skylt við markmið auð-
hrings, sem lætur efnishyggjuna eina
ráða ákvörðunum sínum.
Þegar Sambandið hóf iðnrekstur
sinn á Akureyri var að því stefnt að
auka verðmæti búsafurða og efla at-
vinnustarfsemi. Slíkt hefir jafnan gef-
ist vel og verið leiðarsnúra við val
verkefna. í því efni má benda á
hvernig hefir verið unnið að vinnslu
og sölu sjávarafurða. Iceland Products
er hvorki auðhringur eða hluti af
auðhring heldur samtök sem byggð
eru upp af um 30 frystihúsum kaupfé-
laganna og annarra aðila. Þar er ekki
um valdboð heldur frjálst val að ræða.
Þannig má rekja fjölmarga fleiri þætti
starfsemi kaupfélaganna og Sam-
bandsins.
# Þarflegar framkvæmdir
Lítum til annarra átta.
Alkunnugt er að víða hafa kaupfé-
lög staðið að miklu umbótastarfi.
Stundum eru félögin litin öfundaraug-
um og reynt að leggja steina í götu
þeirra. Með samstarfi og samhjálp
hefir oft verið auðið að lyfta Grettis-
tökum.
Þegar vel hefir árað hjá Samband-
inu hefir það skilað til baka til aðildar-
félaga sinna myndarlegum upphæð-
um. Slíkt hefði enginn auðhringur
gert, heldur lagst sem ormur á gullið.
Kaupfélögin hafa ýmist látið þessa
fjármuni, ásamt hagnaði af eigin
rekstri, renna til félagsmanna sinna
eða þeir hafa verið notaðir til þarflegra
framkvæmda, sem félögin hafa ráðist
í að vilja félagsmanna sinna.
# Öfugmæli
Nú er því slegið föstu, að „auðhringur-
inn“ - það er Sambandið - eigi
kaupfélögin og að „kaupfélagavaldið“
drottni yfir lífi fólksins í smáu og stóru
um allt land. Þetta er þá hvorki meira
né minna en nýtt þrælahald ef rétt
reyndist.
Hér er hins vegar um öfugmæli að
ræða.
Kaupfélögin stofnuðu og reka Sam-
bandið en ekki öfugt. Kaupfélagsfólk-
ið ræður kaupfélögunum og rekur
þau. Það er þessa fólks að ákveða
hvaða verkefnum skuli sinnt. Verk-
stjórn á samvinnuheimilinu verður
ekki falin þeim, sem hafa vantrú á
samvinnurekstri. Um val verkefna
gildir hins vegar engin ein regla. Slíkt
þarf ætíð að skoða og miða við
aðstæður. Það var skiljanlegt að félög-
in yrðu í upphafi að takmarka hvaða
vörur þau seldu. Veltuféð var nær
ekkert. Því var tóbak og kaffi látið
sitja á hakanum. Þá var það talið utan
verksviðs kaupfélaganna að hafa af-
skipti af fiskveiðum eða verkun og
sölu sjávarafurða. Þá var umboðssölu-
formið afgerandi stefnuatriði hjá
kaupfélögunum.
Nú vilja andstæðingar samvinnu-
verslunar taka að sér að marka stefn-
una. Samvinnustarf á að einskorðast
við þröngt svið. Samvinnumenn mega
að þeirra dómi t. d. ekki hafa afskipti
af olíusölu. Þeir mega ekki eiga hluta-
félag, jafnvel þótt það heiti Dyngja og
sé myndarlegur atvinnuveitandi á Eg-
ilsstöðum og þeir mega ekki í neinu
formi hafa viðskipti við erlenda aðila,
jafnvel þótt vitað sé að engin þjóð í
heiminum er eins háð og bundin
erlendum viðskiptum eins og íslenska
þjóðin.
í Svíþjóð eiga samvinnusamtökin
myndarlegan hlut í ferðaskrifstofu
með verkalýðshreyfingunni. Hér er
talið óviðeigandi að samvinnufólkið
sinni ferðamálum og eigi og reki
ferðaskrifstofu með Alþýðusambandi
íslands og öðrum félagasamtökum.
Hlutur samvinnunnar yrði lítill ef
að þessum ráðum yrði farið.
# Lýðræðisleg fjöldasamtök
Það er stór hópur sem valið hefir
samvinnuformið og vill efla það og
styrkja til félagslegrar uppbyggingar
og atvinnustarfsemi í flestum byggðar-
lögum landsins. Þetta fólk velur sér
fulltrúa og starfsmenn eftir fullkom-
lega lýðræðislegum reglum, sem einn-
ig eru viðhafðar í öðrum fjöldasam-
tökum bæði hér á landi og í nágranna-
löndum okkar, þar sem lýðræði er í
heiðri haft. Allt tal um auðhring,
fámennisstjórnir og alræðisvald bygg-
ist á ókunnugleika eða það er óvandað
áróðursbragð.
Samvinnufólkið hefir yfirleitt lítil
fjárráð en það hefir fundið leið og
sannað, að stóra og gagnlega hluti er
hægt að gera með samstilltu átaki,
jafnvel þótt afl eða átak hvers og eins
sé ekki stórt.
♦
44