Samvinnan - 01.12.1984, Qupperneq 54
Frásögn eftir
Sigurð Gunnarsson
fyrrum skólastjóra
Með skáldsögu sem ferðahandbók
■ ^ g átti því láni að fagna fyrir
I—4 nokkrum árum að skjótast til
1 J Svíþjóðar um tíu daga skeið og
dvelja í einu fegursta og söguríkasta
héraði hennar, Vermlandi. Þótt ég
hefði áður ferðast nokkuð um Svíþjóð
og tafið þar um tíma á vissum stöðum,
hreifst ég á ýmsan hátt meira af
mörgu, sem ég sá þar og heyrði en
annars staðar í því ágæta landi. Ég féll
því fyrir þeirri freistni að taka mér
penna í hönd og segja með nokkrum
orðum frá ýmsu því, sem fyrir augu og
eyru bar, meðan ég dvaldi í þessu
fagra héraði.
# Du hárliga land
Flatarmál Vermlands er rúmlega 18
þúsund ferkílómetrar og íbúar þess
um 330 þúsund. Um það bil einn þriðji
hluti þeirra býr í borgum og bæjum.
Miðað við ísland er því mikið þéttbýli
í þessu héraði, enda mun margur fús
á að una þar ævi sinni. Náttúrufegurð
héraðsins er víðfræg, og munu flestir
sammála um, að hún sé hvergi meiri í
Svíþjóð. Um það vitnar líka hinn
kunni byggðarsöngur Vermlands, sem
nýtur sömu vinsælda í sveitum Svía-
ríkis og byggðarsöngur Sigurðar á
Arnarvatni, Blessuð sértu, sveitin
mín, hér heima á Fróni:
„Ack, Vármeland, du sköna, du
hárliga land,
du krona bland Svea-rikes lánder.“
Hinn mikili og sívaxandi ferða-
mannastraumur ber einnig vitni um
fegurð og frægð héraðsins. En þar
koma og til greina ýmsir sögufrægir
staðir, sem marga fýsir að sjá og
kynnast, og síðar verður getið hér að
nokkru.
Kunnur Vermlendingur sagði við
mig eitthvað á þessa leið:
„Vermland er eins og smækkuð
mynd af Svíþjóð. Ekkert af héruðum
landsins sameinar svo mjög einkenni í
sænskri náttúru og þjóðlífi. Nútíma
54
■ jí r,3
urni
m. 1
_ JB.... —
tækni og atvinnulíf Svía yfirleitt á
Vermlandi mikið að þakka, og fá
héruð sameina betur og geta glöggar
sýnt gróna bændamenningu og
sænska, nútíma stóriðju. . . Sænsk
tónlist og skáldskapur eiga líka - ekki
síst, - ýmsar dýpstu rætur sínar í
Vermlandi. Þess vegna getum við,
Vermlendingar, sagt við ykkur, út-
lendingana, sem langar til að kynnast
landi okkar: Komið hingað og kynnist
Vermlandi, - þá þekkið þið Svíþjóð,
- fjölbreytilega náttúru hennar,
blómstrandi atvinnulíf og heillandi
skáldskap: sagnir, ljóð og söngva. En
svo vill til, að sum merkustu skáld
Svía eru einmitt fædd í Vermlandi og
hafa skráð mörg verk sín þar.
Það hefur verið sagt með sanni um
hjarta Vermlands, Fryksdalinn, að
hann sé eina sænska sveitin, sem hægt
sé að fara um með skáldsögu sem
ferðahandbók. Frægt skáldverk hefur
hafið nafn þessarar sveitar yfir aðrar
sænskar byggðir, og nafn hennar hefur
flogið um víða veröld. Lýsing Selmu
Lagerlöf á þessum fagra dal er undur-
samlegur óður um náttúrufegurð
Vermlands.“
Márbakki, heimili Selmu Lagerlöf-
l*egar hún fékk Nóbelsverðlaunin gö*
hún fyrst gert gamlan draum að veru-
leika: Eignast og látið endurbyggj3
gamla rauðmálaða húsið, þar sem huu
hafði leikið sér sem barn.
Márhakki var opnaður almenning1
árið 1942, og afar mikill fjöldi gesl^
hefur síðan skoðað hið fagra og fra*ga
heimili skálddrottningarinnar sænsku.