Samvinnan - 01.12.1984, Qupperneq 56
Með
skáldsögu
sem
ferðahand-
bók
Megineinkenni
sænskrar náttúru er
hinn gróskumikli,
tignarlegi og
víðáttumikli skógur.
Þótt sumt af því, sem ég hef hér
vitnað til, beri keim af skoðun hins
hreykna héraðsbúa, fullyrði ég á
grundvelli töluverðra kynna, að flest
af því styðst við raunveruleg sannindi.
# Þingvellir og Lögberg
Norræna bindindisþingið, sem ég sótti
og varð tilefni þess, að ég fór til
Vermlands, var haldið í borginni
Karlstað. Það er höfuðborg héraðsins
og stendur við mynni Klarelfar, en
hún fellur, svo sem kunnugt er í Væni,
stærsta stöðuvatn Svíþjóðar og þriðja
stærsta stöðuvatn Evrópu, 5.500
ferkm.
Upphaf þessa staðar má rekja til
þess, að á Þingvallaey, í mynni Klar-
elfar, var gamall markaðsstaður. Mun
svo hafa verið um langan aldur. Sagnir
herma, að þar hafi menn safnast
saman um aldir til að kynna og selja
vörur sínar, og til að ráða fram úr
vandamálum með þinghaldi. Eins og
nærri má geta, hlýtur það strax að
vekja athygli íslendingsins, að þarna
finnast enn tvö kunnustu og sögufræg-
ustu staðaheiti okkar, Þingvellir og
Lögberg. Munu þau hafa verið tengd
þessum stað frá því úr grárri forn-
eskju, því að geta má, að bronsaldar-
munir hafa fundist á þessum slóðum.
Klarelfur hefur öldum saman borið
með sér og ber enn mikið magn af
sandi, sem hlaðist hefur upp við
mynni hennar og myndað mikla ós-
hólma. Borgin Karlstaður er að miklu
leyti byggð á þessum óshólmum og er
eina borg Svíþjóðar, sem stendur á
slíkum grunni.
Karl 9. stofnaði bæinn árið 1584 og
ber hann nafn þess konungs. Líkneski
af konungi, glæsilegt listaverk eftir
Vermlendinginn Christian Eriksson,
stendur á einu torgi bæjarins. Árið
1662 voru íbúar Karlstaðar skráðir
360, en þremur öldum síðar, á síðasta
ári, voru þeir 45.572.
Núverandi útlit sitt hefur borgin
fengið eftir árið 1865, en það ár varð
ægilegur eldsvoði í bænum, sem lagði
hann svo að segja allan í auðn. Aðeins
fá hús voru endurreist og skemmdust
þó öll meira og minna. Eitt þeirra var
dómkirkjan gamla, sem reist hafði
verið á Lögbergi, - Lögbergshæðinni
fornu, - á árunum 1723-1731. Árið
1915 voru svo gerðar á henni miklar
endurbætur að utan og innan, og er
hún enn í því formi, einkar stór og
tignarlegur helgidómur, eins og vera
ber á slíkum stað.
Svo sem nærri má geta, fékk bærinn
nýjan og miklu fegri svip,. er hann reis
úr rústum, - með breiðum götum og
stórum görðum og torgum. Var það
beinlínis gert með það í huga, að
auðveldara væri að hefta eld, ef hann
yrði laus á ný. Torg eitt mikið. Stóra
torgið, var gert í miðju borgarinnar.
Það er mun stærra en Gústafs Adólfs-
torg í Stokkhólmi. Lengi var torgið
autt og ónotað og ýmsum undrunar-
efni. En nú eru allir þakklátir yfir því
í Karlstað, að svo stóru torgi var ætlað
rúm í hjarta borgarinnar. Það er
æskilegt af mörgum ástæðum í nútíma
borg, og er óþarft að rökstyðja svo
augljóst mál. En eitt er víst, að
göturnar breiðu, með yndislegum
trjám, sem vaxa upp úr gangstéttum,
og torgin stóru, sem nú eru m. a.
prýdd fegurstu listaverkum, eiga sinn
ríka þátt í að gera Karlstað að hinni
fögru, fjölsóttu og nýtískulegu borg,
sem hún nú er.
Ég sagði fjölsóttu og nýtískulegu
borg, því að hvort tveggja er réttnefni.
Feikilegur fjöldi ferðamanna stað-
næmist í Karlstað stóran hluta ársins,
- héraðsbúar til að versla í hinni miklu
og stórfenglegu verslunarmiðstöð,
sem Karlstaður er, en útlendingar og
landsmenn annarra héraða til að nema
staðar um stund, í hinni fögru og
auðugu borg, á leið sinni um hið
sögufræga og tilkomumikla Vermland.
Byggingar eru margar stórar og
tígulegar. Auk dómkirkjunnar, sem
áður var getið og fleiri kirkna, má til
dæmis nefna: ráðhúsið, ýmsar merkar
og myndarlegar skólabyggingar,
sjúkrahús, gistihús, leikhús, safnahús.
o. fl., að ógleymdum glæsilegum versl-
unarstórhýsum. Þá má ekki heldur
gleyma hinum miklu iðnaðarfyrirtækj-
um, sem eru í borginni, og ráða yfir
stórum iðnaðarhöllum. Kunnust
þeirra eru: málmsmiðja Karlstaðar,
sem m. a. framleiðir vélar til pappírs-
gerðar, skipasmíðastöðin, vefnaðar-
miðstöðin mikla og timburiðnaðar-
verkstæðið.
Lénshöfðinginn hefur aðsetur sitt í
Karlstað og einnig biskup Karlstaðar-
biskupsdæmis.
í útjaðri borgarinnar, aðeins 15
mínútna ferð með strætisvagni frá
Stóra torginu, er eftirsóttur
útiskemmtistaður, sem heitir Marie-
bergskogen. Þetta er yndislega falleg-
ur staður, sem segja má að sé smækk-
uð eftirlíking af Skansinum í Stokk-
hólmi. Þarna er meðal annars töluvert
safn gamalla húsa, og öll dýr Verm-
lands má sjá þar ásamt mörgum
öðrum. Allir ferðamenn vilja gjarna
verja þarna einni dagsstund sér til
fróðleiks og skemmtunar.
Vegna blómlegs atvinnulífs og iðn-
aðar í Vermlandi, hlaut að fara svo,
að Karlstaður yrði mikil hafnar- og
útflutningsborg. Þegar miðað er við
vatnabæi Svíþjóðar, er Vesterás einn
56