Samvinnan - 01.12.1984, Síða 58

Samvinnan - 01.12.1984, Síða 58
mikill gáfumaður, einn af allra fjöl- hæfustu listamönnum Svía fyrr og síðar. Ritverk hans eru 14 þykk bindi, ljóð og óbundið mál, og auk þess liggur eftir hann töluvert af tónsmíð- um og mikið af frábærum teikningum. Vermlendingar meta minningu hans svo hátt, að þeir halda við æskuheimili hans eins og það var, þegar hann ólst þar upp. Það hefur verið opið almenn- ingi marga síðustu áratugi. Við gengum nú um þetta gamla bændabýli, innra og ytra, og nutum þess, sem þar er að sjá, en það er að sjálfsögðu margt, og ýmislegt gamalt og sérstætt. Það fylgir því alltaf sér- stakur seiður, sérstakur annarlegur hugblær, að koma inn í safnahús sem þetta. Þá fá gestir um stund innsýn í löngu liðna tíma, og hugurinn staldrar um stund við þær gagngeru breytingar, sem orðið hafa á lifnaðarháttum manna á síðustu tímum. Á þessu býli ólst líka upp nokkru síðar annar kunnur rithöfundur og ljóðskáld, Friðrik Dahlgren. Hann hefur meðal annars skrifað söngleik- inn Vermlendingana. Og þótt nú sé komið nokkuð á aðra öld frá því að leikritið var skráð, er það enn jafnvin- sælt. Það er leikið á hverju ári um Með skáldsögu sem ferðahand- bók Vatnslitamynd eftir Fryksdalslista- manninn Erling Árlingsson. jólaleytið af kunnu listafólki í sjálfri höfuðborginni, Stokkhólmi, og einnig víða út um land. Vinsældir þessa leikrits minntu mig á leikrit séra Matthíasar Jochumssonar, Skugga- Svein, sem enn er alltaf jafnvinsælt hjá okkur og yfirleitt alltaf leikið á hverju ári einhvers staðar á íslandi. Eitt af kunnustu söngljóðum Dahl- grens er: „Á jenta, á ja“, ort á sveitamáli Vermlands, og hafa ís- lenskir karlakórar oft sungið það og syngja enn. . . Dahlgren er einnig kunnur sem stórvirkur þýðandi klass- ískra verka. 0 Meiðið ekki Tage, drengir! Næst var numið staðar stutta stund hjá bændabýli því, þar sem einn af allra kunnustu stjórnmálamönnum Svía, Tage Erlander, fyrrverandi forsætis- ráðherra, er fæddur og uppalinn. Rifj- uð var upp meðal annars gamansaga frá æsku hans. Snemma hafði komið í ljós, að drengurinn var óvenju glöggur og gáfaður. Foreldrar hans höfðu því hugsað sér að koma honum sem fyrst til mennta, þótt efni væru lítil. En vegna foringjahæfileika sinna, sem fljótt komu í ljós, varð drengurinn oft fyrir öfund og aðkasti leikfélaganna. Og eitt sinn, þegar nokkrir þeirra höfðu ráðist á hann og ætluðu að lægja rostann í þessum monthana, eins og þeir kölluðu hann stundum, kom móð- ir hans þar að og kallaði í örvæntingu: „Slá inte Tage, pojkar, - han skal kostas pá,“ - meiðið ekki Tage, drengir, - það á að kosta hann í skóla! En fyrst ég sagði þessa sögu frá æsku forsætisráðherrans, hlýt ég að geta þess, að sagt er að Vermlendingar séu almennt gamansamari en aðrir landsmenn og bregða því oft fyrir sig kímni við ýmis tækifæri. Er forsætis- ráðherrann sjálfur engin undantekn- ing frá þeirri reglu. Og af því að ég hafði sérstaka ástæðu til að minnast hans í sambandi við þessa ferð, er réttast að ég bregði hér upp einni gamansögu, sem okkur var tjáð, að einmitt forsætisráðherrann sjálfur hefði sagt nýlega á opinberri sam- komu. Má vafalaust leggja út af henni á ýmsa vegu. Prestur nokkur, sem eitt sinn þjón- aði í Vermlandi, hafði haft sérstaka ánægju af að stunda veiðar í hinum gjöfulu skógum prestakallsins. Sunnu- dagsmorgun einn, þegar prestur hafði boðað messu klukkan ellefu, gat hann ekki stillt sig um að fara á veiðar. En þar sem ákafinn var mikill, gleymdi hann tímanum og komst með naum- indum til kirkjunnar rétt áður en messan átti að byrja. Til allrar ham- 58
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.