Samvinnan - 01.12.1984, Qupperneq 62
Með fiðluna
á bakinu
þó að erfitt verði að rekja þá sögu.
Þau systkinin bjuggu saman næstu
árin á Akureyri. Næsti bústaður var
nr. 25d á Akureyri, en í sóknarmanna-
talinu 1879 búa þau á Oddeyri í húsi
nr. 2d.
Ekki verður annað séð en Akureyr-
ingum hafi þótt góð tilbreyting að því
að fá orgel í kirkjuna, en hitt er einnig
ljóst að þeir gátu vel hugsað sér að láta
einhvern annan en Magnús Einarsson
sitja við það. Magnús mun hafa verið
ölkær um þessar mundir og því hætt
við forföllum t. a. m. við kennslu á
orgelið. Sigtryggur Guðlaugsson getur
hans meðal þeirra sem beittu sér fyrir
stofnun bindindisfélags á Akureyri í
bréfi 10. febrúar 1879 og það bendir
til þess að hann hafi haft góðan vilja
til þess að vinna bug á þessum bresti
sínum. Líf hans hafði tekið ákveðna
stefnu og hann farinn að sinna þeim
hugðarefnum sem hugur hans hafði
lengi þráð, en brátt varð breyting á.
Árið 1881 var Björn Kristjánsson
ráðinn organleikari við Akureyrar-
kirkju og Magnús varð að standa upp
frá orgelinu og kveðja Akureyri um
sinn.
Program.
Js/anc/sk Sangkor ,,3íek/a“.
1905 — 1906.
1. Vér hcilsum frá konu . . . Jí. Einarsson.
2. Þú álfu vorrar yngsta land. S. Einarsson.
3. Lýsti sól stjörnustól . . . Sv. Sveinbjörnsson.
4. Bára blá Isl Follicm elo di.
5. Buldi við brestur .... II He/oason.
6. Systkinin
Pause.
7. Vornótl />. Porsteinsson.
8. Er æðir stormur . . .. S. Einarsson.
9. Kirkjuhvoll
10. Gröfin S. Einarsson.
11. Fifilbrekka, gróin grund ■ ■ M. Einarsson.
12. Allir eitt />. Porstcinsson.
—* í
Akurcj-ri. 1905 PicnUð lijá Oddi Björn->yni.
# Sjálfmenntaður í fiðluleik
Magnús Einarsson brá á það ráð að
flytjast til Húsavíkur, þar sem hann
gerðist organisti við kirkjuna. Hann
bjó fyrst í húsi sem bar hið táknræna
nafn „Skrúfstykki“ og kirkjubókin
titlar hann organista. Næsta ár bjó
hann í svonefndu Stangarbakkahúsi
og fékk þangað til sín Hallfríði systur
sína og Sigurbjörn hálflrróður sinn.
Þetta heimilishald hefir þó ekki staðið
nema árið, því að árið 1884 hefir
Magnús fengið sér bústýru - Krist-
veigu Jónsdóttur frá Máskoti í
Reykjadal, einnig hafði hann léttapilt
16 ára, svo að einhver búrekstur hefir
verið stundaður jafnframt organista-
starfinu og kennslu.
í Þingeyjarsýslu hafði fiðluleikur
tíðkast um árabil. Hann hófst með
Jóni Jónssyni - sem kenndur hefir
verið við Voga í Mývatnssveit. Hann
var við smíðanám í Kaupmannahöfn
um miðja 19. öld og lagði jafnframt
stund á fiðluleik og þegar heim kom
varð hann eftirsóttur á öllum gleði-
mótum fyrir söng og fiðluleik. Hann
segir svo frá í ævisögu sinni að hann
hafi verið eini maðurinn í allri sýslunni
og allt til Akureyrar sem nokkuð
kunni til hljóðfæraleiks. Hitt er ekki
síður mikilvægt að hann kenndi öðrum
fiðluleik og vakti áhuga og gleði hjá
Söngskrá úr frægðarför karlakórsins Heklu 1905 - 1906.
Söngfélagið Hekla.
Fremst til vinstri: Fáll Jónatansson, Helgi ísaksson, Snorri Sigfússon,
Hallgrímur Kristjánsson, Jón Kristjánsson, Þorsteinn Thorlacius.
Miðröð: Páll Asgrímsson, Jón Steingrínisson, Pétur Jónasson, Frímann Frímannsson,
Tryggvi Jónasson, Snorri Snorrason, Oddur Kristjánsson.
Aftasta röð: Benedikt Jónsson, Magnús Lyngdal, Jónas Þór, Árni Jónsson,
Magnús Einarsson, söngstjóri, Kristján Sigurðsson, Ásgeir Ingimundarson,
Jón Þór, Cuðmundur Kristjánsson.
62