Samvinnan - 01.12.1984, Side 67
geti einungis á þeim lifað, en á hinn
bóginn er staða þessi þannig löguð að
hún hamlar mér, sem kennara og
organista, að leita þeirrar atvinnu,
sem eg annars gæti stundað ef eg ekki
væri skuldbundinn að vera til staðar
við hverja messugjörð hér allt árið um
kring og við skólana á veturna, auk
þess sem þau ekki þola samanburð við
laun margra organista hér á landi, t.
d. í Reykjavík, Seyðisfirði og ísafirði
o. fl., sem allir hafa talsvert hærri laun
fyrir orgelspil sitt en eg hefi hér, án
þess þó að þeir hafi haft neinn sérstak-
an kostnað til að afla sér söngfræði-
legrar menntunar, að undanteknum
þeim í Reykjavík, enda munu laun
hans aðeins fyrir orgelspilið í kirkj-
unni vera um 1000 kr. Þessi framan-
nefndu laun mín fékk eg hér í fleiri
undanfarin ár, meðan eg ekki hafði
betri þekkingu í söng eða söngfræði,
en nær því að segja hver annarra
organista hér á landi, enda hafa þau
að öllum líkindum upphaflega verið
miðuð við það að auðvelt væri að fylla
skarðið þó eg færi, en eins og kunnugt
er sigldi eg árið 1893 og var ytra part
úr sumri þess árs til að fullkomna mig
í söngfræðisþekkingu minni, og geta
vitnisburðir þeir, sem eg hefi frá
kennurum mínum þar t. d. Viggo
Sanne o. fl. sýnt að ég hefi fengið
talsverða þekkingu í þeirri grein, en
samt sem áður eru laun mín hin sömu,
þó að öllum líkindum að árangurinn
af vinnu minni sé betri en hann var,
einkum við skólana. Þar sem eg nú sé,
eins og að framan er tekið fram, að eg
ekki get lifað hér við þessi laun mín,
nema með því að þurfa að ganga að
ýmsri stritvinnu annað augnablikið,
sem að meiru eða minnu leyti veikir
krafta mína í þjónustu sönglistarinn-
ar, sem eg þó helst vildi eyða þeim til,
þá' leyfi eg mér hér með að fara þess á
leit að hinni háttvirtu bæjarstjórn
mætti þóknast að hækka laun mín um
64 kr. þannig að þau alls yrðu 200
krónur um árið fyrir orgelspil mitt og
skólana.
Akureyri 1. apríl 1895
Magnús Einarsson
Til bæjarstjórnarinnar á Akureyri.
• Brautryðjandi á sínu sviði
Eftir að Magnús Einarsson flutti aftur
til Akureyrar frá Húsavík hófust störf
hans við söngkennslu bæði við barna-
skólann á Akureyri og við Möðru-
vallaskólann. Þangað fór hann einu
sinni í viku með fiðluna sína á bakinu
oftast fótgangandi og færði skólanum
Hann skrifaði
bæjarstjórninni bréf
25. maí 1895, þar sem
hann reifar þá
hugmynd að fá styrk
frá alþingi til að
kenna mönnum
ókeypis á orgel.
Sendum viðskiptavinum okkar beztu óskir um
GLEÐILEG JOL
með þökk fyrir gott samstarf á árinu
KAUPFÉLAG HÉRAÐSBUA
Kaupfélag Héraðsbúa rekur verzlanir á Egilsstöðum, Reyðarfirði, Seyðisfirði og
Borgarfirði eystra, slátur- og frystihús á Egilsstöðum, Fossvöllum, Reyðarfirði og
Borgarfirði, mjólkursamlag og trésmíðaverkstæði á Egilsstöðum, kjötvinnslu, gisti-
hús, bílaútgerð, olíusölu og fóðurblöndunarstöð á Reyðarfirði.
Aðalskrifstofa á Egilsstöðum.
s —
- y.ii'" WBmm
67