Andvari

Årgang

Andvari - 01.06.1959, Side 5

Andvari - 01.06.1959, Side 5
ÓLAFUR HANSSON: BOGI ÓLAFSSON, MENNTASKÓLAKENNARI. I. Bogi Ólafsson var fæddur 15. október 1879 í Efri-Sumarliðabæ í Holtum. Foreldrar bans voru hjónin Ólafur Þórðarson og Guðlaug Þórðardóttir. Bæði voru þau hjón af kunnum bændaættum þar eystra. Ólafur Þórðarson var fæddur á Húsum í Kálfholtssókn. Þar bjuggu foreldrar hans, Þórður Ólafsson og Helga Jónsdóttir. Ólafur missti föður sinn ellefu ára gamall og fluttist þá að Hárlaugsstöðum og ólst þar upp. Hann stundaði á yngri árum löngum sjóróðra á Suðurnesjum og þótti harðduglegur sjómaður. Ólafur var maður dulur í skapi og fálátur hversdagslega. Þótti liann stundum stuttur í spuna og kaldur í svörum. Hann var málafylgjumaður hinn mesti, og þótti ekki heiglum hent að etja kappi við hann á manniundum, enda mun hann löngum hafa ráðið því um málefni sveitar sinnar, er hann vildi. Hann var vandur að vinum, en trölltryggur, þar sem liann tók því. Elins vegar var hann talinn maður þykkjuþungur og langrækinn og eiga erfitt með að gleyma því, sem á móti honum var gert. Ólafur var talinn gáfaður maður og fjölhæfur. Hann var smiður ágætur, bæði á tré og járn, og lék allt í höndum hans. Reiknings- maður var hann með afbrigðum. Eitt sinn hafði einhver villa slæðzt inn í hreppsreikninga Holtahrepps, og höfðu ýmsir glímt tímunum saman árangurs- laust við að reyna að linna hana. Var þá leitað til Ólafs, og fann hann villuna nær því á svipstundu. Ólafur hafði mikið yndi af skáktafli og spilum. Var hann talinn einn snjallasti skákmaður og lomberspilari í Rangárþingi. Ólafur var einn þeirra manna, sem ekki eru að öllu leyti við alþýðuskap, cn menn mátu hann því meir, sem þeir kynntust honum betur. Árið 1860 kvæntist Ólafur Guðlaugu Þórðardóttur. Voru foreldrar hennar Þórður Jónsson, bóndi í Efri-Sumarliðabæ og Helga Gunnarsdóttir. Faðir Helgu var alkunnur merkishóndi, Gunnar Einarsson í Hvammi á Landi, og hafði sú ætt búið í Hvammi í fullar tvær aldir. Móðir Helgu var Kristín Jónsdóttir, sonardóttir Bjarna Halldórssonar á Víkingslæk, sem hin fjölmenna Víkingslækjarætt er frá komin. Guðlaug Þórðardóttir var hinn mesti dugnaðarforkur, og féll henni sjaldan
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.