Andvari - 01.06.1959, Qupperneq 14
12
ÓLAFUR HANSSON
ANDVARI
að fullu og að hann varð stundum að taka á, ef hann þurfti að tala við
ókunnugt fólk. Undir hinu hrjúfa fasi var hann í rauninni nærri barnslega
viðkvæmur. Þeir, sem sáu ekki annað en hina harðneskjulegu grímu, héldu
hann oft allt annan mann en hann í raun og veru var.
VII.
Bogi fékk lausn frá embætti árið 1948 eftir langan og strangan vinnu-
dag. Hann hugðist nú fá næði til að sinna ritstörfum og lestri. Fyrstu árin
eftir að hann lét af störfum við Menntaskólann vann hann talsvert að þýð-
ingum og sílesandi var hann, á meðan hann hafði rænu. En heilsa hans tók
fljótlega að bila, og kraftar hans fóru smám saman að þverra. Sumarið 1956
lagðist hann rúmfastur, og eftir áramótin var hann oftast rænulítill. Hann
lézt að morgni 10. marz 1957.
Bogi Ólafsson var röskur meðalmaður á hæð, gildvaxinn og samanrekinn
og allur hinn vörpulegasti á velli. Höfuðið var mikilúðlegt, ennið hátt og hvelft.
Hann var manna hárprúðastur, var liárið ljósrauðleitt á yngri árurn, en gránaði
hin síðari ár. Ég heyrði þjóðkunnan myndlistarmann eitt sinn segja, að Bogi
hefði hið fegursta höfuð á íslandi. Maðurinn var allur slíkur, að liann hlaut
að vekja athygli, livar sem hann fór, menn hlutu að sjá, að hér var enginn
meðalmaður á ferð. Og það er mála sannast, að með Boga Ólafssyni hvarf
einn hinna merkustu og sérkennilegustu íslendinga á þessari öld.
z '—A
SAGA ÍSLENDINGA.
Hið mikla ritverk Menningarsjóðs, saga Islendinga frá upphafi til 1918, verður alls
12 bindi. Út eru komin 7 bindi, er ná yfir tímabilið 1500—1904. Alls er ritið orðið
rúmar 3400 bls. og hefur að geyma geysimikinn fróðleik.
Öll bindi verksins eru enn fáanleg, og er verðið mjög lágt. Upplag það, sem til er af
elztu bindunum, mun þrjóta fyrr en varir. Tryggið yður þetta mikla ritverk meðan tök eru á.
„Þessi íslendinga saga er hið mesta afrek, þegar þess er gætt, hve fáum mönnum er á
að skipa til verksins, að víða vantar enn undirstöðurannsóknir með öllu og jafnvel ýmsar
nauðsynlegar heimildir frá síðustu öldum liggja enn óprentaðar. Hefur þama verið unnið
brautryðjandastarf, sem hægra verður um að bæta en hefja."
Jón Jóhannesson, prófessor.
Vercf állra 7 bindanna, sem út eru komin:
Kr. 460,00 óbundin, kr. 638,00 í rexinbandi, kr. 932,00 í skinnbandi.
MENNINGARSJÓÐUR
V____________________________________________________________________/