Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1959, Page 15

Andvari - 01.06.1959, Page 15
SIGURBJÖRN EINARSSQN: Biblían, kirkjan og visindin. Því efni, sem hér skal ræða, verða ekki gerð rækileg skil í stuttu máli. Ætlun mín með þeim orðum, sem hér fara á eftir, er heldur ekki sú að grípa yfir það allt, heldur að vekja athygli á nokkrum grundvallaratriðum, sem snerta samband Biblíunnar, og þar með kristinnar trúar, við vísindalega hugsun og viðleitni Norðurálfuþjóða, víkja síðan að fáeinum sögulegum atriðum og loks að heimsmynd Biblíunnar og afstöðu hennar til vísindalegra kenninga um heimsfræðileg efni. Með „heimsmynd" er átt við þá mynd, sem menn gera sér af hinum ytra heimi á grundvelli þess, sem menn telja sig vita um lögun hans, gerð og eðlislög, þ. e. á grundvelli þeirra fræða um náttúru heimsins, nær og fjær, sem menn hafa aflað sér. I. Vér lifum á öld vísinda og fleygir nú fram í flugastraumi vísindalegrar og tæknilegrar framsóknar, sem á sér margra alda aðdraganda. Enginn vafi er á því, hvaða þjóðir það eru, sem hafa haft forystu í þessari framsókn. Það eru aðeins sárfáar af þjóðum heims, sem hafa hrundið þessari þróun fram og borið hana uppi. Og þær hafa verið einar um þá hitu allt til vorra daga og eru enn. Það eru þjóðir Evrópu og dótturþjóðir þeirra í nýja heiminum. Hvað kemur til, að Evrópumaðurinn mótaðist á þennan veg, tók að leggja þá alúð við vísindalega athugun og rannsókn, sem raun hefur á orðið? Og hvað ber til þess, að hann hefur í þessu komizt það, sem hann er kominn? Þetta eru spumingar, sem hljóta að leita á, enda hafa þær verið allmikið ræddar. Og þó að ólíklegt sé, að þeim verði nokkurn tíma svarað á þann veg, að óvefengt verði cða óvelengjanlegt, þá eru þær allt um það stórmikil- vægt athugunarefni. Fyrsta skilyrði þess, að maðurinn gcti farið að nálgast náttúruna með þess kyns forvitni, er felur í sér fræ vísindalegrar afstöðu, er það, að hann verði nokkuð sjálfstæður gagnvart umhverfi sínu. Fyrr fer hann ekki að hnýsast í það, sem í kringum hann er, né rýna það í þeim huga, sem stefnir áleiðis
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.