Andvari - 01.06.1959, Síða 45
andvari
SIGURÐUR TRÖLLI
43
héðan úr kvæðinu, einnig um stuggvænt
í þessari merkingu.
Stefán segir í bréfi: „1 kvæðunum
kunna að vera orðskrípi einhver, ég veit
ég er oft djarftækur um orðmyndanir,
af því ég hefi engan málfræðislærdóm,
en vil heldur skapa nokkuð, þótt sumt
verði aftur vanskapnaður".1)
Lítið er um slík orðskrípi hér. Hins
vegar stafsetur skáldið orð eftir fram-
burði til að víkja ekki frá hrynjandi
kvæðisins (opnri, dáltið), en þetta má
víst flokka undir svokölluð skáldaleyfi,
einnig það, er hann notar á einum stað
nefnifallið Ægir í þolfalli:
Ég fann ég hafði ei afl við Ægir
°g orðmyndina hjall (þolfall af hjallur)
eins og um væri að ræða þolfallið af
hjalli:
með lækjahlaup um hjall og skriður
1) Bréf og ritg. I, bls. 54—55 (14. jan. 1894).
Náttúrulýsingum er fléttað inn í frá-
sögnina, oft 1 minnisstæðum myndum.
Landið þar efra er hrjúft og svipmikið
og vettvangur hamslausra veðra. Eru
ágætar lýsingar skáldsins á ríki Sigurðar
trölla, t. d. taumlausum veðurofsanum:
Svo valt fram skriða af veðragjósti,
sem væru að springa æðar tindsins
við sogin þung frá þöndu brjósti
að þeyta lúður norðanvindsins.
Og stórbrotin, skáldleg sýn kemur
fram í þessum ljóðlínum:
Frá vesturdala dröngum háu
um daghvörf gusu norðurljósin,
sem tauma legði loft við jörðu
úr logahlekk og rauðum baugum.
En minnisstæðasta mynd kvæðisins er
Sigurður trölli, þar sem hann stendur
yfir sauðum sínum í fjahinu ofan við
Frostastað. Hann er hrjúfur hið ytra,
hlýr hið innra, voldugur konungur í ríki
sínu, ósigrandi meðan lifir.
Bognar aldrei — brotnar í
bylnum stóra seinast.
Rit Stephans G. Stephanssonar
Bréf og ritgerðir I.—IV. bindi.
A árunum 1938—1948 komu út hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins
Bréf og ritgerðir Stephans G. Stephanssonar. Þorkell Jóhannesson sá um útgáfuna. Þetta
er heildarútgáfa af ritum skáldsins í óhundnu máli, alls 1471 hls. með 15 sérprentuðum
myndum. — Bréf og ritgerðir kosta samtals kr. 140,00 heft, kr. 300,00 í skinnbandi.
Andvökur I.—IV. bindi.
Ný lieildarútgáfa á kvæðum skáldsins, í sama broti og „Bréf og ritgerðir". Alls 4 bindi.
Þorkell Jóhannesson hjó til prentunar.
I. bindi, stærð 592 bls. Verð kr. 82,00 heft, kr. 110,00 í bandi, kr. 135,00 í skinnbandi.
II. bindi, stærð 538 bls. Verð kr. 85,00 heft, kr. 112,00 í bandi, kr. 140,00 í skinnbandi.
III. bindi, stærð 612 bls. Verð kr. 95,00 heft, kr. 125,00 í bandi, kr. 160,00 í skinnbandi.
IV. bindi, stærð 572 bls. Verð kr. 125,00 heft, kr. 170,00 í bandi, kr. 230,00 í skinnbandi.
Enginn íslendingur, sem bera vill það nafn með fullri sæmd, rná láta undir höfuð
leggjast að eignast og lesa rit Stephans G. Stephanssonar.
BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓDS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS