Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1959, Page 50

Andvari - 01.06.1959, Page 50
48 GlltíMUNDUIl DANÍliLSSON ANDVAIU „EF hún ekki endist lengur en til páska, þá held ég prófasturinn hefði betur átt hana óselda." „Ha? — Og láta biskupinn hafa hana fyrir ekki neitt! Nei, Jón minn Diðriksson, ég neita því algerlega að láta amtmann, dauðann og biskupinn taka af mér alla hluti, — hangiketinu og brennivíninu skal ég að minnsta kosti sjálfur halda.“ Stundu síðar eru þeir riÖnir af staðnum, út í landsynninginn. „Já, Jón minn Diðriksson," hrópar Þorleifur Arason og yfirgnæfir dyn vatns og vinda, „ég stend við það sem ég sagði undir borðum áðan. Þú ert vís til að skilja það — lengi búinn að fylgja mér, Jón, og fátt sagt, en því fleira heyrt og séð: ég hef misst þann hlut — ég hef orðið að sjá af þeim hlut, að þaðan í frá eru mér aðrir hlutir svo vel einhvers virði að þá sé hægt að éta og drekka.“ „Bágt er það, séra Þorleifur, ef mannsins líf skal vera ein löng erfis- drykkja utan enda,“ gegnir meðreiðarmaðurinn, „og það eftir útlenda konu.“ „Hvurju skiptir það, — ef hún er öngu að síður sú eina kona, og aðrar nafnið tómt? Sást þú nokkru sinni jómfrú Appoloníu Schwartzkopf?“ „Nei,“ anzar Jón Diðriksson, og tónninn í rödd hans er þess konar sem hann vildi sagt hafa: „nei, sem betur fer.“ Þorleifur glottir við tönn og muldrar: „Nei. En af þessum heirni fer þó enginn alsnauður, sem hana sá héðra.“ Þeir ríða þegjandi síðan, allt að fljótinu fram, og við Markarfljótsvað bætir Þorleifur á sig brennivínslögg og býður Jóni að dreypa með sér á tárinu, en Jón vill ekki drekka. „Það er mikill vöxtur í því,“ segir hann og meinar fljótið. „Þú heldur þig aftan við mig, Þorleifur, ég ætla að rekja brotin í dag.“ „Nei,“ gegnir Þorleifur Arason, „í þetta sinn skal ég rekja brotin, sjá þú heldur fyrir okkur í kvöld.“ Hann hóf upp rödd sína og söng og keyrði hestinn út í vatnið, syngjandi, en hlustaði ekki á andmæli Jóns Diðrikssonar. Það var sálmur Lúthers, „Óvinnanleg borg er vor Guö“, tryllt og fagnandi siguróp mannssálarinnar yfir andskotanum, hvern nú þarf ekki lengur að óttast: „þótt djöflum fyllist veröld víð, þeim vinnst ei oss að hrella, því Jesús vor oss veikurn lýð er vörn og hjálparhella". Þorleifur beljaði sálminn til enda og kvað sterklega. Það gerðu höfuðskepnurnar einnig: regn og stormur lömdu hann ofan til miðs, en fljótið þar fyrir neðan, — nú skall það á bóghnútu, og dýpkaði meir, náði þó aldrei taghnarki. Ekki vissi Jón Diðriksson hvort það var hesturinn eða Þorleifur, sem brotin rakti, eða hvort það var Lúther, eða jafnvel sjálfur Jesús Kristur, nema eitt var víst: betur var ekki hægt að gera það. Einhver ógnþrungin snilld Ijómaði af ferð Þorleifs Arasonar um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.