Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1959, Page 57

Andvari - 01.06.1959, Page 57
andvari KÍSILGÚRVINNSLA 55 gúr notaður sem fylliefni, og í lakk- og málningariðnaði er hann notaður til þess að halda litarefnum uppi. Kísilgúr er ennfremur notaður til að halda uppi hvötum við ýmsan efnaiðnað, svo sem hrennisteinssýruvinnslu og smjörlíkisgerð. Hann er notaður sem burðarefni fyrir skordýraeitur sem notuð eru sem duft og einnig mjög mikið nú seinni ár til húðunar á vatnssæknum áburðartegund- um, svo sem ammoníumnitrati. Áburðar- verksmiðjan í Gufunesi notar t. d. um 700 tonn á ári til húðunar á Kjarna- áhurðinum. Um það hil helmingur hins eðla kísil- gúrs mun þó vera notaður við síun á torhreinsuðum efnablöndum. Kísilgúr er þá oft hlandaS beint í vökva þann sem sía skal, hann sezt síðan á síudúkinn með öðrum óhreinindum og hindrar að síudúkurinn stíflist. Slík notkun kísil- gúrs mun hafa byrjað í sykuriSnaðin- um, en hófst síSan í hjór- og víniSnað- •num og hefir síðan breiðzt út og er algeng í flestum greinum efnaiðnaðar. T. d. má nefna síun á ýmsum sýrum, úhreinu vatni, olíuefnum, fernis og lökk- um, vaxtegundum, gúmmíupplausnum, málmhreinsunar- og húðunarupplausn- um, jurtaolíum, feiti, límtegundum, hatkeríucyðandi efnum og mörgum öðr- um efnum. Hér á landi hefir síunar- kísilgúr helzt verið notaður viS lýsis- hreinsun. Núverandi notkun kísilgúrs hér á landi cr langt innan við þau mörk að magni til, sem sjálfstæS kísilgúrvinnsla krefst. Notkun hans á þó án efa eftir að aukast hér með vaxandi iðnaSi, en það virðist ósennilegt að sjálfstæða kísil- gurvinnslu megi hyggja á innanlands- þörfum einum. Hefjist hér veruleg vinnsla kísilgúrs á næstu árum mun hún því einkanlega miðast við útflutning. Vinnsluaðferðir. Kísilgúr er unninn úr kísilmoldinni í verksmiðjum sem framleiða yfirleitt minnsta kosti nokkur þúsund tonn á ári. 1 Þýzkalandi er hagkvæm einingarstærð t. d. 10.000 tonn, en staðhættir ráða að sjálfsögðu miklu um það. Vinnsla kísil- gúrs er að mestu leyti fólgin í að hreinsa sem rnest öll óhreinindi af kísilskeljun- um. Þar eð þær nema sjálfar aðeins litlum hluta af þyngd hráefnisins er hagkvæmni þeirra aðferða, sem unnt er að beita hverju sinni, mikilsverð. Aukaefni þau, sem þarf aS skilja frá eru 1) vatn, því kísilgúr inniheldur allt frá þyngd sinni af vatni og upp í tífaldan þunga sinn í sumum kísilmoldartegund- um. Því næst 2) sandur og önnur gróf- kornuð óhremindi, 3) lífræn efni og kristalsvatn og 4) bundin efni, svo sem járnoxíð, ef svo ber undir. KísiljörSin er þó svo misjöfn í námum þeim sem hagnýttar hafa verið, að í rauninni eru ekki neinar staðlaðar eSa algildar aðferðir til vinnslu hans. Kísil- jörðin í hverri einstakri námu hefir sín séreinkenni og verSur að haga vinnsl- unni eftir því. Hreinn kísilgúr er lítiS eitt rauðleitur eða hvítur að lit. Hann er mjög smá- kornótt og létt efni. Fyrsta stig kísilgúrvinnslu er að sjálf- sögðu kísilmoldarnámið. Flestar námur sem unnar eru munu vera opnar, og þarf þó oftast að rySja burtu meira og minna af öðrum jarðefnum sem liggja yfir kísilmoldinni. Oft sígur mikið vatn inn í slíkar námur og þarf að dæla því hurtu jafnóðum, svo vinna megi með vélknúnum tækjum niðri í námunni. Þegar kísilmoldarlögin eru undir vatni, er hráefninu aftur á móti dælt upp eða það er fært upp með færibandaskóflum. Þessar síðarnefndu aSstæður eru t. d. fyrir hendi í Mývatni og hafa þegar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.