Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1959, Page 61

Andvari - 01.06.1959, Page 61
andvahi ÞEGAR GESTIRNIR VORU FARNIR 59 hann hverfi í einu vetfangi frá almennum hugleiðingum að hlutlægu dæmi. Þessi hugmynd sýnist svo þarflaus að hún gæti virzt brotalöm á heildarhugsun kvæðisins, ef menn færu einu sinni að brjóta það til mergjar — og ef ekki væri bót í máli. Fæstir lesendur kvæðisins munu nokkru sinni hafa velt því fyrir sér, hvort það sé sprottið af einhverju ytra tilefni — og enn síður, hvert það tilefni kynni þá að hafa verið. Menn hafa lesið kvæðið sem óháð sköpunarverk og látið sér það vel líka. Og vissulega gæti höfundurinn hafa sótt það allt í sjálfs sín hugarheim; það greindi einungis almennar hugmyndir hans. Það er fjarskalega auðvelt að láta sér sjást yfir hugsanahvörfin í kvæðinu — ekki sízt þegar þess er gætt, að eftir þau hefst frægasti boðskapur þess. Allir, sem kunna nokkur skil á kvæðum Þorsteins og skaplyndi, vita að fyrsta erindið flytur eina eftirlætishugmynd hans; hann þurfti sannarlega ekki sérstakt tilefni til að halda henni á lofti. í fræðum þeirrar pólitísku stefnu, sem Þorsteinn aðhylltist, er lögð mikil áherzla á hlut múgamannsins að sköpun sögunnar — og þá væri kveikja annars erindisins komin í leitirnar. Ummælin um æskuna og ellina gætu einnig verið reist á rótgrónu viðhorfi skáldsins, viðhorfi sem hann þurfti ekki sérstaka brýningu til að láta í ljós. Kvæðið er stórt og veg- legh þar sem það stendur eitt síns liðs á víðum velli skáldskaparins; það þarfnast ekki útlistunar, það kallar ekki á stuðning í ævisögu höfundar síns. Samt sem áður er skylt að hafa það heldur, sem sannara reynist: kvæðið er einmitt ort af sérstöku tilefni. Sá, sem þekkir þá sögu, les það með nokkuð öðrum skilningi en hinn; og skal hún nú rakin í stuttu máli. í ljóðasyrpum Þorsteins stendur svofelld athugasemd við þetta kvæði: >,Kveðið þ egar landar mínir hér í Höfn færðu mér peningagjöf, 15. febrúar 1893“. Það var prentað fyrst í marz-hefti tímaritsins Sunnanfara sama ár; neðan undir því stendur skrifað: „15/2 93“. Á hvorugum staðnum eru tiklrög gjafarinnar greind; en í smáfréttabálki síðar í sama hefti ritsins er skýrt frá þeim. En það er rétt að skyggnast enn fáeina mánuði aftar í tímann, áður leyndarmálinu sé ljóstrað upp. í september-blöðum Sunnanfara 1892 hafði Þorsteinn birt kvæðin Örlög guðanna og Örbirgð og auð. Þessi kvæði opinberuðu hugmyndir, er orkuðu sem reiðarslag á allar frómar sálir. í fyrra kvæðinu boðaði höfundurinn enda- !ok guða og trúarbragða; í hinu síðara lýsti hann því, hvernig guð kirkjunnar steypti fátækuin í glötun, en héldi verndarhendi yfir ríkismönnum. Vestur- heimska blaðið Heimskringla prentaði bæði kvæðin, eftir Sunnanfara, 21. septeniber 1892. Tímarit lúterska kirkjufélagsins vestra, Sameiningin, brá þá
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.