Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1959, Page 73

Andvari - 01.06.1959, Page 73
andvari LANDHELGISMÁLIÐ 71 liggur til grundvallar þeim aðgerðum, sem íslendingar liafa gert undanfarin rúm 10 ár. Ekki gerist þess þörf hér, svo oft sem það hefir verið gert utanlands og innan, að lýsa því ýtarlega hvernig lífshagsmunir íslendinga em nátengdir fiskveiðunum. Eðli málsins samkvæmt á þetta við fyrst og fremst um fisk- veiðarnar á miðunum umhverfis Island. Island er þannig í sveit sett, að það liggur fjarri öðrum löndum og land- grunn þess er skýrt afmarkað frá landgrunnum nágrannalandanna. Raunvem- lega liggur landið á norðurmörkum hins byggilega heims, en með Golf- straumnum hefir náttúran komið því þannig fyrir, eins og til að bæta upp fátækt landsins sjálfs að náttúrugæðum, að í sjónum umhverfis landið eru hin ákjósanlegustu skilyrði fyrir auðugt hf, sem er undirstaða hinna miklu fiskiauðæfa á þessum slóðum. En þessi auðlind er ekki ótæmandi. Reynsla okkar á því tímabili, sem Rófst með sókn erlendra hotnvöipuskipa á íslandsmið fyrir meir en 60 árum, hefir kennt okkur, að gengdarlaus ásókn á fiskistofnana getur aðeins leitt lil eyðingar þeirra, en þar með væri kippt grundvellinum undan fiskveiðum við ísland. Þess gerist heldur ekki þörf að rekja hér þá þróun, sem átt hefir sér stað í þessum efnum, en árangur hennar hefir verið ljós hverjum þeim, sem vildi sjá og skilja. Gegndarlaus rányrkja erlendra togara áratugum sarnan, svo að segja upp í landsteina leiddi til þess, að þýðingarmiklir fiskistofnar voru ofurseldir tortímingunni, ef ekki hefði verið gripið í taumana áður en það var um seinan, en afli fór þá sífellt minnkandi á fiskimiðunum umhverfis landið. Islendingar hafa í rauninni hin ákjósanlegustu skilyrði til að byggja afkoniu sína á fiskveiðum. Með réttu má segja, að frá náttúrunnar hendi liafi engin þjóð við norðanvert Atkantshaf önnur eins. Það er ekki aðeins, að I iskimiðin umhverfis landið séu af náttúrunni vel úr garði gerð, heldur er og emnig lega landsins þannig, að ef öll fiskimiðin í Norður-Atlantshafi, frá Nýfundnalandi í vestri til Barentshafs í austri, eru tekin sem heild, þá er styttra að sækja á þau öll frá íslandi, en frá nokkru öðru landi á þessu svæði. Við lifum í heimi, þar scm verkaskipting milli þjóðanna fer sífellt vaxandi. I aukna verkaskipting er einmitt megin undirstaðan undir þeirri miklu vel- niegun, sem fjölmargar þjóðir, þar á meðal íslendingar, lifa nú við. Það grundvallaratriði, sem þessi verkaskipting þjóðanna byggist á, er, að hver þjóð stundi þá framleiðslu, sem náttúran veitir henni bezt skilyrði til. Þegar á þetta er litið er von að spurt sé: Áttu íslendingar að horfa á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.