Andvari - 01.01.1990, Blaðsíða 10
8
HJÁLMAR H. RAGNARSSON
ANDVARI
áður birst í þeim ritgerðum er hér hafa verið nefndar. Þó ber að geta
ritgerðar Ingunnar Þóru Magnúsdóttur, sem hún lagði fram til B.A.-
prófs við Háskóla íslands haustið 1989, um söguleg tildrög að stofnun
Bandalags íslenskra listamanna og starfsemi þess fyrstu árin. Ingunn
byggir þessa ritgerð sína á bréfum þeirra Jóns Leifs og Gunnars Gunn-
arssonar skálds, sem þeir rituðu Guðmundi Einarssyni frá Miðdal á ár-
unum 1925-1931. Auk þess að vera merkileg heimild um Bandalag ís-
lenskra listamanna veita þessi bréf lesanda þeirra sýn inn í hugarheima
tveggja jöfra íslenskrar listsköpunar, sem áttu það sameiginlegt að
dveljast langtímum saman útlagalífi erlendis og skapa verk sem flest-
um öðrum fremur sækja innblástur sinn til hinnar fjarlægu fósturjarð-
ar.
Jón Leifs var gríðarlega afkastamikill bréfritari og er til urmull bréfa
frá honum sem lítt eða ekkert hafa verið könnuð. Hann skrifaði ótal
greinar og ritgerðir um mál af hinum ólíkasta toga og er langt frá því að
málflutningur hans hafi verið krufinn til mergjar. Af þeim mikla fjölda
tónverka sem Jón smíðaði hefur aðeins hluti verið fluttur þannig að
viðunandi sé, hvað þá að þau hafi verið rannsökuð tónvísindalega til
nokkurrar hlítar. Frú Þorbjörg Leifs, ekkja Jóns, hefur staðið og
stendur enn trúan og dyggan vörð um lífsstarf manns síns. Með hlýju
síns stóra hjarta hefur hún veitt mér aðgang að ýmsum þeim mikils-
verðu persónulegu heimildum, sem hún hefur í fórum sínum og varða
mann hennar á einn eða annan hátt. Fyrir þetta er ég frú Þorbjörgu
þakklátur.
Ýmislegt af því, sem kemur fram í þessari grein, er byggt á þessum
heimildum frá frú Þorbjörgu, en annað hefur komið í ljós við nánari
skoðun á þeim gögnum, er ég áður hafði í fórum mínum. Þetta er ekki
ævisaga Jóns Leifs, enda er hér stiklað á stóru og ýmsu því sleppt sem
telst markvert í lífi hans, en það er hins vegar von mín, að grein þessi
veki hjá lesendum forvitni um líf og starf þessa stórbrotna manns og
verði þeim til einhvers fróðleiks, sem áhuga hafa á sögu íslenskrar tón-
sköpunar á þessari öld.