Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1990, Blaðsíða 77

Andvari - 01.01.1990, Blaðsíða 77
ANDVARI „EIN ÁSJÓNA VERÐUR AÐ MÖRGUM ' 75 hann ímyndaði sér“ (bls. 309). En hún kemur hvergi auga á hann, hún sér hins vegar „nokkuð sem hún vildi ekki sjá“. Það er Daníel undir blaktandi fána nasistaflokksins með steinrunnið andlit. Það er alveg ljóst af sögunni að Knútur er sá sem Bogga elskaði. Hún leyf- ir honum að velja hvort hann vilji kalla hana Boggu eða Ellu. Sjálfur er hann alinn upp í litlu þorpi við sjó og hann velur að kalla hana Ellu eins og hún var alltaf kölluð áður en hún kom í húsið. Fyrir kemur að hún ber þá saman: „Knútur teygði sig yfir borðið og kom laust við handarbakið á henni, nokkuð annað en þegar Daníel var að káfa . . .“ (bls. 271). Knútur hvetur hana til að hrifsa til sín frelsið en hann býður henni ekkert öryggi hjá sér. Frelsi hennar utan hússins er án hans, hann hverfur af landi brott og hún sér hann ekki framar. Þannig er hamingja hennar ekki undir honum komin. Og ef til vill undirstrikar síðasta minningin að sjálfa sig finnur hún ekki með því að sýna Knúti hver hún er, hún finnur þá bara Daníel í staðinn fyrir Knút. Hún verð- ur að fara aðra leið, sína eigin leið og finna þannig sjálfa sig. Hér hefur verið fjallað um nokkur atriði í sögum Álfrúnar Gunnlaugs- dóttur. Þær eru eins og allar góðar bókmenntir óþrjótandi uppspretta um- hugsunar og umfjöllunar. Smásögurnar báru vott um listfengi og vandvirkni höfundar og boðskapur þeirra var bæði alvarlegur og áríðandi. Þar var fjall- að um kjör fólks bæði hér á landi og annars staðar í heiminum af skilningi og samúð og um ábyrgð mannsins gagnvart meðbræðrum sínum. Ábyrgð manns gagnvart sjálfum sér og öðrum er einnig tekin til meðferðar í skáld- sögunni Þel sem er á margan hátt mjög vel skrifuð saga. Hringsól er þó sú bók sem sýnir best hvað í höfundinum býr. Það er breið skáldsaga en þó einkum saga konu sögð á nýjan hátt. Frá fyrstu bók var augljóst að Álfrún hafði mjög gott vald á þeim aðferðum sem hún notaði í frásögn en í Hringsól hefur hún náð meistaralegum tökum bæði á efni og formi. Hringsól er ein athyglisverðasta skáldsagan sem komið hefur út á íslandi á þessum áratug og hún ásamt fyrri bókunum tveimur staðfestir að Álfrún Gunnlaugsdóttir er einn af okkar bestu rithöfundum. 1 Konur skrifa til heiðurs Önmi Sigurðardóttur, Reykjavík, Sögufélag 1980. 2 Jean Franco: An Introduction to spanish-american literature, Cambridge University Press 1969, bls. 341. 3 Ritdómur í Skírni vor 1988, bls. 187-195. 4 Skírnir vor 1988, bls. 189.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.