Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1990, Blaðsíða 96

Andvari - 01.01.1990, Blaðsíða 96
94 JÓNAS KRISTJÁNSSON ANDVARI hann ekki flytjast í Reykholt fyrr en 1207 í Arbókagreininni, en 1208 í fyrir- lestrinum - og tímasetur svo Egilssögu „um 1208“. En þess er skylt að geta að bæði í greininni og fyrirlestrinum bætir Björn við ýmsum röksemdum fyr- ir því að Snorri hafi ritað söguna á ungum aldri, áður en hann fór til Noregs í fyrra sinn 1218 og áður en hann samdi Heimskringlu. Ekki tekur betra við þegar kemur að Droplaugarsonasögu og Gíslasögu, en þær tímasetur Björn hvora eftir annarri. Hann telur eins og flestir fræði- menn - og að ég held vafalaust með réttu - að Droplaugarsonasaga hafi haft áhrif á Gíslasögu. Hann miðar því aldur Gíslasögu við aldur Droplaugar- sonasögu: „Droplaugarsonasaga virðist vera með eldri íslendingasögum, líklega frá fyrstu árum 13. aldar,“ segir hann. „Gæti þá Gíslasaga verið frá c. 1220.“ En þegar hann kemur til Austfjarða segir hann að Droplaugarsona- saga hljóti að vera „frábyrjun 13. aldar“, af því að hún hafi haft áhrif á Gísla- sögu sem sé líklega „ekki síðar samin en um 1225.“ Þetta er ágætt dæmi um þær aðferðir sem vér fræðimenn notum þegar vér erum að tímasetja íslend- ingasögurnar. Björn M. Ólsen talar um að orðfæri og allur blær Heiðarvígasögu sé forn- legur, og í fyrirlestri sínum gerir hann ágæta grein fyrir frásagnarlist sögunn- ar sem hann telur að mörgu leyti frumstæða og ófullkomna; „sagnalistin hef- ur verið á bernskuskeiði þegar sagan var skrifuð,“ segir hann. í hverjum fyrirlestri fjallar hann nokkuð um list sagnanna sem hann notar með öðru til að ákvarða aldur þeirra. Sigurður Nordal hefur víða fjallað um þróun og hnignun sagnaritunarinnar, fyrst í bók sinni um Snorra Sturluson. í formála Egilssögu segir hann meðal annars (bls. lxiii): „Sagnaritunin hefst með íslendingabók Ara, strangfræðilegu yfirlitsriti, og heldur þeirri stefnu áfram í ættartölum og ágripum munnlegra sagna. Hin klerklega sagnaritun, sem lét dómvísina þoka fyrir áhugamálum kirkjunnar, og sögur um samtímaviðburði rýmka smám saman um hömlurnar. Kröfurn- ar um rækilega og skemmtilega frásögn eldri viðburða sækja á, svo að leiðin opnast meir og meir fyrir hina alþýðlegri sagnalist og söguefni. í verkum Snorra nær sagnaritunin fyllsta samræmi vísinda og listar, skemmtilegrar frásagnar í taumhaldi sögulegrar dómgreindar. Hún hneigist enn meir í átt- ina til sögulegra skáldsagna, án þess að missa þó hinn raunverulega blæ, og nær þar nýju hámarki listarinnar í Njálu. Eftir það rofnar samræmið, smekk og hófsemi hnignar, og sagnaritunin leysist sundur í annála og ýkjusögur...“ Mér virðist enginn vafi á því að þessari þróun er rétt lýst þegar á heildina er litið. En það væri með ólíkindum ef hún hefði verið bein og hlykkjalaus, og menn hafa notað þessi einkenni helst til djarflega til að ákvarða aldur sagnanna. Ágætt dæmi er að finna í formála Turville-Petres fyrir útgáfu hans á Víga-Glúmssögu frá 1940. Hann vitnar til fræðimanna um aldur nokkurra hinna elstu sagna frá 1200 fram um miðja 13. öld: Heiðarvígasögu, Bjarnar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.