Andvari - 01.01.1990, Side 73
ANDVARI
„EIN ÁSJÓNA VERÐUR AÐ MÖRGUM '
71
og þegar hún þarf ekki lengur á honum að halda, rekur hún hann frá sér. Þá
tekur hún aftur saman við Nicasio, gamlan vin frá Hondúras sem er með
henni í andspyrnuhreyfingunni og hún virðist raunar hafa haft samband við
allan tímann.
Samband geranda og þolanda er ekki síður flókið í Hringsól. Lítilli stúlku
sem er send að heiman í ókunnugt hús eru búin örlög sem hún á sjálf engan
þátt í. Lýsingin á barnæsku hennar í húsinu er mjög átakanleg, ekki síst
kuldaleg framkoma Sigurrósar. Löngu síðar, þegar hún sjálf er gift Daníel
og orðin frúin í þessu sama húsi en Sigurrós gömul kona, sjáum við hvernig
hlutverkin hafa snúist við. Samband Boggu við dóttur sína, Lilju, er kulda-
legt og Lilja sækist frekar eftir sambandi við pabba sinn en þó einkum Sigur-
rósu sem er henni eins og góð amma. Bogga er hins vegar full af tortryggni og
óvild í garð Sigurrósar. Hún getur varla hugsað sér að leggja sér til munns
það sem Sigurrós hefur eldað og gefur í skyn að það sé einhver óþverri.
Ennþá flóknara er þó samband hjónanna, Boggu og Daníels. Hann er
mjög vingjarnlegur við hana þegar hún kemur sem barn í húsið en fer fljót-
lega að áreita hana kynferðislega. Leiðir þeirra skilja þegar hann fer til
Þýskalands. Á þeim tíma fer Bogga úr húsinu alfarin að því er hún sjálf held-
ur og býr hjá Dísu sem hafði verið vinnukona hjá Sigurrós þegar Bogga var
barn. Þegar leiðir þeirra Daníels liggja aftur saman, er líf Boggu í rauninni í
rúst. Lesanda er ekki ljóst fyrr en í lok sögu hvernig sú atburðarás var í raun
og veru. En það er ljóst þegar í upphafi annars hluta bókarinnar að Bogga
hefur eignast dreng og misst hann og sú reynsla er svo sársaukafull að hún
þráir það eitt að deyja, hún „vildi ganga á fund dauðans heima í þorpi við sjó,
liggja á börum og kreppa hendur við barminn, þannig átti það að vera, kom
ekki nokkrum manni við nema henni og dreng sem ekki mundi kveðja, liðin
kveðjustund þeirra. Hafði klætt hann í rauðköflóttar buxur . . .“ (bls. 85).
Því er lýst aftur og aftur hvernig hún handleikur föt barnsins, þrýstir þeim að
sér og geymir þau í tösku. Eftir að þau Daníel eru gift, týnist taskan og í ljós
kemur að hann hefur fleygt henni og skammast sín ekki fyrir það, minnir
hana á að þau ætli bæði að gleyma því sem liðið er. Þessi ákvörðun að þegja
um hið liðna á ef til vill sinn þátt í því hvernig hjónaband þeirra hefur verið.
Þar virðist hafa ríkt kuldi og þögn. Bogga segir: „Þegar ég loks fæ málið er
líkt og stífla bresti. . . Meinið er að maður vill gleyma. Ég er víst ekki lengur
ég, aðeins var. Og verð að muna“ (bls. 162). í þessum orðum kemur einnig
fram að tilgangur þess að rifja upp hið liðna er tilraun til að finna aftur það
sem var horfið, eigin sjálfsmynd.
En hvers vegna giftist hún Daníel? Gefið er í skyn að alveg frá því Bogga
var barn hafi Daníel átt vingott við Sigurrós, mágkonu sína. Þegar leiðir
þeirra Daníels og Boggu liggja aftur saman í húsinu er enn mjög innilegt og
dularfullt samband milli Daníels og Sigurrósar en um leið fer hann að leita á