Andvari - 01.01.1990, Side 87
JÓNAS KRISTJÁNSSON
Var Snorri Sturluson
upphafsmaður íslendingasagna?
I
í doktorsritgerð sinni um Ólafs sögu helga sem út kom árið 1914, fjallar Sig-
urður Nordal um samband Fóstbræðrasögu við ýmsar gerðir Ólafssögunnar.
Kemst hann að þeirri niðurstöðu að Fóstbræðrasaga sé óháð elstu Ólafssög-
unni, en hafi hinsvegar haft áhrif á yngri gerðir hennar. Samkvæmt því hlaut
Fóstbræðra saga að vera skrifuð um 1200 eða í byrjun 13. aldar. Og síðan var
sagan notuð sem leiðarljós þegar ákvarða skyldi aldur annarra íslendinga-
sagna sem taldar voru gamlar: svona gömul var þessi bókmenntagrein,
svona gamlar gátu aðrar íslendingasögur líka verið.
En í riti mínu um Fóstbræðrasögu sem út kom fyrir tæpum tveimur áratug-
um kippti ég sögunni út úr því samhengi sem Sigurður Nordal hafði fengið
henni. Ég sný röðinni einfaldlega við og set Fóstbræðrasögu á eftir öllum
hinum fornustu sögum af Ólafi helga, meðal annars Ólafssögu Snorra
Sturlusonar. Geri ég ráð fyrir að sá sem ritaði Fóstbræðrasögu hafi sótt
ýmsar frásagnir af Þormóði Kolbrúnarskáldi í einhverja sögu af Ólafi kon-
ungi. Ég tel að mál og stíll Fóstbræðrasögu, svo og samband hennar við önn-
ur rit, sýni að hún sé ekki eldri en frá lokum 13. aldar. Vafalaust munu mínar
kenningar riðlast þegar tímar líða eins og annað í fræðum þessum, en þó hef
ég ekki trú á því að Fóstbræðrasaga verði nokkru sinni flutt aftur í hið forna
legið og tímasett til upphafs 13. aldar.
Fljótlega tók ég að íhuga hverjar afleiðingar þessi flutningur Fóstbræðra-
sögu kynni að hafa fyrir tímasetningu íslendingasagna. í fyrirlestri sem ég
hélt á fyrsta alþjóðlega fornsagnaþinginu í Edinborg árið 1971 vék ég að því,
að ef til vill þyrfti að endurskoða aldursákvörðun sagnanna í heild sinni og
kynnu þær sem bókmenntagrein að vera nokkru yngri en talið hefði verið.
Ég fylgdi þessu ekki frekar eftir að sinni, en fjórum árum síðar, 1975, hélt ég
fyrirlestur um aldur íslendingasagna við allmarga háskóla í Þýskalandi. Síð-
an hef ég haldið þennan fyrirlestur með nokkrum breytingum víða um lönd,
en fram að þessu hef ég aldrei opinberað hugmyndir mínar hér á landi. En nú
er hafin hér heima ný umræða um aldur íslendingasagna, og ber þess einkum