Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1990, Side 95

Andvari - 01.01.1990, Side 95
andvari VAR SNORRI STURLUSON UPPHAFSMAÐUR ÍSLENDINGASAGNA? 93 endurspeglast í sögunum, nýja menningarstrauma, breytingar á lögum og þjóðskipulagi og fleira. En það verður að segjast sem er, að ef vér gerum ráð fyrir að ritun íslendingasagna hafi byrjast um eða fyrir 1200, þá höfum vér ekkert áþreifanlegt að festa hendur á frá fyrstu hálfu öldinni eða vel svo. Elsta handritsbrot er tímasett um eða laust eftir miðja 13. öld, og fyrstu ör- uggu áhrifin á aðrar bókmenntir verða einnig eftir miðja þá öld. Þegar menn reyna að tímasetja þær sögur sem taldar eru frá þessu tímabili, beita þeir nær einvörðungu huglægum aðferðum. Miðað er við það að sögurnar hafi þróast jafnt og þétt. Mönnum finnst tiltekin saga vera frumstæð eða fornleg að máli og stíl, önnur nokkru þroskaðri, sú þriðja lengst komin á þróunarbrautinni, og svo raða menn þeim í tíma samkvæmt því. Lítum á það sem Björn M. Ólsen hefur að segja um aldur Heiðarvígasögu, elstu sögunnar sem hann heldur vera. Sagan er, sem kunnugt er, aðeins varðveitt í einu handriti óheilu, og var elsti hluti þess áður tímasettur til miðrar 13. aldar (mun raunar h.u.b. hálfri öld yngri, sem síðar getur). Nú finnur Björn ýmsar villur í þessu handriti og ályktar því - í sjálfu sér með miklum líkum - að nokkrir liðir hafi verið milli þess og frumrits sögunnar. „Af þessu virðist mega ráða,“ segir Björn, „að frumritið geti varla verið yngra en frá aldamótunum 1200, en kunni hinsvegar að hafa verið talsvert eldra, t.d. frá h.u.b. 1180-90.“ Hann bendir á áhrif frá Heiðarvígasögu á Eyrbyggju sem hann tímasetur um 1220. Og til frekari staðfestingar segir hann að lokum: „Ef vér berum Heiðarvíga sögu saman við þær sögur sem áreiðanlega eru til orðnar snemma á 13. öld, t.d. Egils sögu (um 1208), Eyr- byggju (um 1220), þá virðist mér orðfærið og yfirleitt allur blærinn á Heiðar- víga sögu mæla með því að hún sé hérumbil mannsaldri eldri, rituð um 1180-90“ (Um ísl.s., bls. 211). Þegar vér komum svo að tímasetningu hinna sagnanna tveggja sem Björn miðar við, Egilssögu og Eyrbyggju, kemur í ljós að þar er ekki fast land undir fótum. Ég hef áður nefnt að Björn byggir tímasetningu Eyrbyggju á mis- skilningi á gerðum Landnámabókar, að sagan hljóti að vera eldri en forrit Sturlubókar og Hauksbókar. Og tímasetning Eglu er ekki miklu traustari. Björn miðar við það að Snorri Sturluson hafi skrifað söguna meðan hann bjó á Borg upp úr aldamótunum 1200. Þessa skoðun setti hann fyrst fram í rit- gerð um Landnámu og Egils sögu í Aarböger for nordisk Oldkyndighed og Historie 1904. Helstu röksemdir hans eru þær að landnám Skallagríms sé stórlega ýkt í sögunni og að því sé furðu nákvæmlega lýst hversu skipverjar hans námu land umhverfis Borg. Björn heldur sig að sjálfsögðu við fyrri skoðanir sínar í fyrirlestrinum um Egilssögu, en að manni læðist sá grunur að hann hefði litið öðruvísi á málið ef hann hefði skoðað söguna að nýju í sam- hengi við aðrar sögur þegar hann hélt fyrirlesturinn tíu árum síðar. Hann reynir að seinka brottflutningi Snorra frá Borg sem mest hann má, lætur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.