Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1997, Page 50

Andvari - 01.01.1997, Page 50
48 GUÐMUNDUR HÁLFDANARSON ANDVARI þingið var studd sögulegum rökum hlaut þingið að vera haldið á sínum upprunalega stað.31 Eins virðist andstaðan við Reykjavík hafa mótast af ótta manna við siðspillingu í höfuðstaðnum, þótt sá ótti kunni að þykja ein- kennilegur þegar þess er gætt að á þessum tíma bjuggu aðeins um þúsund sálir í Sódómu íslands.32 Árni Thorlacius umboðsmaður í Stykkishólmi, sem var mikill aðdáandi og stuðningsmaður Jóns Sigurðssonar, skrifaði honum t. d. bréf í september 1842 þar sem hann sagðist ósammála Jóni um þingstaðinn. Árni taldi Þingvelli henta bændum eins og sér miklu betur en Reykjavík, af því að ódýrara myndi reynast að liggja í tjöldum og nærast á skrínukosti en að þurfa að kaupa alla þjónustu í höfuðstaðnum. Einnig sagðist hann „ekki . . . óhræddur um að fyrir einhvörjum kunni sá glaumur og margmenni sem er í Reykjavík að glepja . . .“33 Afstaðan til staðsetningar Alþingis endurspeglaði vel þá tvíbentu af- stöðu sem löngum hefur einkennt viðhorf landsmanna til höfuðstaðarins. Svo eitt dæmi sé tekið, þá dró Jón Thoroddsen upp heldur ófagra mynd af Reykjavík í ástarsögunni um Indriða og Sigríði og sennilega hefur lýsing hans farið nær skoðunum Islendinga um miðja síðustu öld en skrif nafna hans Sigurðssonar. Þar er bænum lýst sem bæli spillingarinnar, þar sem blöndun danskra og íslenskra siða og tungumáls gróf undan hreinlyndi íbú- anna. Hamingjuna finna þau Sigríður og Indriði í faðmi dalanna, þegar þau hlýða kalli drottins og reisa bú á óbyggðu landi.34 Skáldverkið Piltur og stúlka er skrifað undir greinilegum áhrifum frá menningarlegri þjóðernisstefnu í anda heimspekinganna Herders og Ficht- es. Bókin leggur megináherslu á siðspillandi áhrif blöndunar menningar- heima fremur en gagnrýni á þéttbýlið sem slíkt, enda fer því fjarri að allir íbúar sveitanna í sögunni séu hjartahrein og vammlaus góðmenni. Vantrú annarra íslendinga á þjóðhollustu Reykvíkinga tengdist þó oftast fremur áherslu þeirra á mikilvægi landbúnaðarins og sveitavinnu fyrir viðgang ís- lensks samfélags en heimspekilegum vangaveltum um eðli þjóðernis. Gott dæmi um þetta viðhorf er áskorun frá Hjaltdælingum til þjóðfundar frá ár- inu 1850, en þar er kvartað yfir „þeim óþjódlega anda hjá Valdamönnun- um, að vilja búa í Verdslunarstöðunwm". Þetta sé sérlega bagalegt, af því að þar fari þeir á mis við landbúnaðarvinnu og verða landsmönnum ekki sú fyrirmynd'sem þeir gætu orðið ef þeir byggju í sveitunum.35 Svipuð viðhorf komu fram á þjóðfundi, en þar vildu sumir dreifa versluninni um allt land. Rökin fyrir því voru þau að „þá færist ábatinn fremur upp í hvern fjörð og dal og sveit, en að efla einstöku vissa verzlunarstaði, og þróa þannig staða- lífið, sem hér á ekki við byggðarlag eður landslag, og sem eg er svo hrædd- ur um, að hér geti aldrei átt við hvort sem er“, svo vitnað sé til ummæla Jóns hreppstjóra Sigurðssonar frá Tandraseli í Mýrasýslu.36 Að hluta til átti þessi andúð á þéttbýlinu rætur í fjárhagslegum hagsmun-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.