Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1997, Side 145

Andvari - 01.01.1997, Side 145
ANDVARI INNANGARÐS OG UTAN 143 Ekkert þeirra systkina fékk á sig mannsmynd nema þá helst Hel, sem engu að síður er þannig lýst í Snorra-Eddu að hún væri „blá hálf, en hálf með hörundarlit“ og auk þess „gnúpleit og grimmileg“. Síst er að undra þó að þar kæmi að Loki sýndi sinn rétta lit. Er í minnum haft að á örlagastund þegar sjálfir æsir áttu um líf og dauða að tefla lét Loki sá lævísi áss sig hafa það að eignast áttfættan vanskapning með hrossinu Svaðilfara. Æsir breiddu yfir þessa lausung með því að gera afkvæmið að reiðhesti Óðins, en í minnum er haft að hestur hans hét Sleipnir og hafði sá fjóra fætur, svona til vara. Má nærri geta að nú á dögum ynni slíkt sköpulag á hrossi hvorki til hárrar einkunnar né eftirsóknarverðra verðlauna meðal Skagfirð- inga eða annarra þjóða. Ef við höfum í huga að lýsingar þær sem ég nú hef stuðst við eru þegnar frá táknmyndaheimi mannshugans þar sem flest kann að vera sannferðugt ef rétt er lesið og fólki tekst að sjá við sjónhverfingum og göldrum, þá kem- ur goðfræðilegur áhugi mannfræðinga og jafnvel félagsfræðinga síst á óvart. Hafa nokkrir úr þeim hópi staldrað við stéttaskiptingu sem augljós er í nor- rænni goðafræði. Ekki er nóg með að kvenkyn hlyti lægri sess en karlkyn og yrði þannig að verulegu leyti utangarðs, heldur var hlutur jötna fremur bágborinn í samanburði við æsi. Öruggt má telja að jötnum hafi verið til sí- fells angurs hversu djarftækir höfðingarnir í Ásgarði voru til þursameyja og enn sárar kann þeim að hafa sviðið að sakir ills innrætis og þá sennilega lágrar þjóðfélagsstöðu utangarðs var ekki um jafnaðarskipti að ræða á þessum vettvangi. Jötnar áttu lítilli kvenhylli að fagna í Ásgarði. Tilraunir þeirra að ná til sín ásynjum enduðu með ósköpum og urðu þeim sjálfum að bana. Hefur lengi verið í minnum haft hversu mjög þeir girntust Freyju og var þar í einu tilviki um banvæna ást að ræða. Astleitni jötna varð til þess að sú fagra Vanadís varð spéhrædd og óttaðist að aðrir kynnu að vita hana vergjarnasta, svo að vitnað sé til hennar eigin orða sem jafnframt benda eitthvað í áttina til lýsingarorðsins lauslátur og nafnorðsins lauslæti. Öll tormerki eru þó á því að Freyja hafi nokkru sinni borið slík orð sér í munn, þar sem dæmi um þau úr norrænni eða íslenskri tungu eru ekki ýkja gömul eins og brátt verður að vikið. Hvað sem annars má segja um orðanotkun má glöggt ráða að stéttamunur olli því meðal annars að jafnaðarskipti um lausung í ástamálum náðust aldrei milli ása og jötna. Æsir áttu jafngreiðan aðgang að kalla að þursa- eða jötnameyjum eins og höfðingjar til forna að griðkonum sínum eða ambáttum. Jötnum voru aftur á móti allar bjargir bannaðar að þessu leyti og minna helst á þræla sem samkvæmt okkar fornu lögbók Grágás kembdu ekki hærurnar ef þeir ætluðu sér ekki af í kvenna- málum og gerðust nærgöngulir við eiginkonur húsbænida sinna. Trúlegt er að bæði félags- og mannfræðingum þætti sú hliðstæða forvitnileg. Kveðskapur Óðins um konur er fráhrindandi: „Meyjar orðum/ skyli
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.