Andvari - 01.01.1954, Side 11
andvari
Steinþór Sigurðsson
7
fluttist í Hellusund 3, sem er örskammt þar frá. Þeir Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri og Steinþór voru því uppeldisbræður,
að kalla mátti, en Hákon þrem árum yngri. Hefur Hákon sagt
mér ýmislegt af æskuárum þeirra félaga, og er sumt af því skráð
bér á eftir, eins og Hákoni segist frá.
„Steinþór hélt jafnan verndarhendi yfir mér og var mér góður.
En bann var snemma framtakssamur og átti til að nota mig við
tilraunir sínar. Einu sinni voru foreldrar okkar að heiman og
skyldum við gæta hússins. Steinþór mun þá hafa veriö 9—10
ára og ég 6—7. Nú hafði Steinþór lesið eitthvað urn fallhlífar,
ef hann hefur þá ekki fengiö hugmyndina sjálfur. Nokkuð var
það, að hann safnaði öllum regnhlífum, sem í húsinu voru,
spennti þær út, batt saman á sköftunum og bjó til fallhlíf. Síðan
fór hann með mig upp í gríðarháan lausastiga, batt mig við fall-
hlífina og skipaði mér að stökkva, af því að ég væri svo léttur.
Þetta gerði ég umsvifalaust. Regnhlífarnar úthverfðust, en þær
drógu úr fallinu, svo að ég meiddi mig ekkert, þótt ég lcæmi
nokkuð hart niður. Okkur þótti verst með regnhlífarnar!
Steinþór mun hafa verið 12 ára, er hann gekkst fyrir stofnun
Indíánafélags á Laufásvegi. Hafði hann og Geir Aðils forustuna.
Um þær mundir stóð yfir heimsstyrjöldin fyrri og má vera, að
það hafi ýtt undir. Félagsmenn urðu að mæta í einkennisbún-
ingi til leika og æfinga. Voru það pokabuxur úr striga, sem við
smeygðum okkur í utan yfir. Annars voru Indíánar eltki herskáir.
Við börðumst aldrei innbyrðis, en stundum sló í brýnu við stráka
úr næstu götum, sem söfnuðu liði gegn okkur. Var Steinþór
sjálfkjörinn fyrirliði, og reyndist hann bæði herkænn og skeinu-
hættur óvinunum.
A þessum árum var Vatnsmýrin hálfgerð eyðimörk, og áttu
Indíánar þar ágætt griðland. Stundum höfðumst við þar við í
tjöldum og lékum Indíána. Við frömdum aldrei óknytti fram yfir
það að ræna nokkra hana stélfjöðrum til skrauts. Án þeirra gát-
um við ekki verið sannir Indíánar.
AS vetrinum komum við saman í húsakjöllurum, þar sem