Andvari - 01.01.1954, Page 12
8
Jón Eyþórsson
ANDVARI
rýmst var, og héldum uppi skemmtunum. En svo eignuðumst við
samkomuhús með undursamlegum hætti. Þau frú Georgia og
Sveinn Björnsson, síðar forseti íslands, áttu heima á Staðarstað
um þessar mundir. Þar var talsvert tún frá fomu fari, auðvitað
ágætur leikvöllur. Hjónin á Staðarstað áttu nokkrar endur og
höfðu fengið forláta andakofa frá Danmörku. Hann var á lágum
hjólum og hafður niður við tjöm á sumrin. Einhvern veginn
misfórust endurnar, og kofinn stóð tómur. Nú bauð Sveinn
Bjömsson að gera við okkur sáttmála: Við skyldum fá andakof-
ann til umráða gegn því loforði að sparka ekki um túnið á Staðar-
stað. Þessu kostaboði tókum við fegins hendi. Þarna sátum við
margt kvöld við kertaljós, en Steinþór las fyrir okkur ferðabækur
Sven Eledins og sneri á íslenzku jafnharðan, því að þær vom
á sænsku. Hann mun þá hafa verið nýkominn í Menntaskólann.
Steinþór var einstakur leiðtogi fyrir jafnaldra sína og okkur,
sem yngri vorum. Hann var svo hugmyndaríkur, að hann fann
allt af upp eitthvað nýtt til þess að fást við og sagði skýrt og greini-
lega, hvernig við skyldum fara að því. Við hlýddum honum um-
yrðalaust. Elann henti á lofti allar nýjungar, sem hann las. Ýmist
fræddi hann okkur urn þær eða reyndi að gera þær eftir. LTm
langt skeið var Hvers vegna — vegna þess biblía hans. Eftir for-
skriftum þaðan hjuggum við til sprengiefni og sitthvað fleira.
Á fyrstu árum sínum í menntaskóla smíðaði Steinþór stjömu-
kíki í félagi við Magnús Magnússon, nú símaverkfræðing. Þeir
slípuðu sjálfir holspegil í hann. Yfirleitt þekkti Steinþór allar
mögulegar stjörnur á himninum, frá því að ég man eftir, og
reyndi að kenna okkur margt í stjörnufræði.
Á sumrum dvaldist Steinþór oft með foreldmm sínum að
Hlíð í Grafningi hjá skyldfólki sínu. Vandist hann þannig jöfn-
um höndum kaupstaðar- og sveitalífi".
NÁMSFERILL OG NÁMSÁR. Steinþór settist í 1. bekk
Menntaskólans árið 1917 og lauk stúdentsprófi úr stærðfræði-
deild 1923, 19 ára gamall, með góðri I. einkunn. Hann var jafn-