Andvari - 01.01.1954, Side 30
2ó
Jón Eyþórsson
ANDVARI
Þetta var í fyrsta skipti, sem íslenzkir fræðimenn áttu kost á
að rannsaka eldgos og fylgjast með því frá upphafi. Auk Stein-
þórs lögðu margir sig ötullega fram við rannsóknirnar. Ber þar
fyrst að nefna þá Sigurð Þórarinsson, Trausta Einarsson og Guð-
mund Kjartansson. Fljótlega komst á eölileg verkaskipting milli
þessara manna, og mun ritsafnið um HeklugosiÖ sýna ljósast,
hvernig henni var varið. Ég hygg þó, að Rannsóknaráð með
Steinþór í broddi fylkingar hafi átt mjög góðan þátt í því að
greiða fyrir rannsóknum í heild og skipuleggja þær í aðalatriðum
Víst er urn það, að þeir félagar gengu að Heklurannsóknum
svo ötullega, að enginn erlendur fræðimaður kom þar nærri,
nema sem gestur og áhorfandi. Er það atriði, þótt í smáu sé,
sigur og viðurkenning íslenzkum náttúruvísindum.
Þeir Steinþór og félagar tefldu oft á tæpasta vað í Heklu-
ferðum sínum. Þeir hættu sér nálægt gígunum, þótt gosgrjóti
rigndi niður í kringum þá. Einu sinni, er dálítið hlé var á gos-
inu, hætti Steinþór sér niður í aðalgíginn til þess að safna sýnis-
hornum lofttegunda þeirra, er lagði upp úr gígbotninum. Hann
var vel búinn, með stálhjálm og gasgrímu og sterk hlífðarföt.
Sakaði hann eigi að öðru en því, að hlífðarfötin dröfnuðu utan
af honum, skömmu eftir að upp var komið.
Ég veit fyrir víst, að Heklugosið var eitthvert mesta ævintýri
og undur, sem fyrir Steinþór bar á lífsleiðinni. Það töfraði hann
og seiddi til sín, — seiddi hans loks í dauðann. Á honum rættist
hið rómverska spakmæli: Sjá hina æðstu fegurð og dey síðan.
KVONFANG OG HEIMILI. Góðvinir Steinþórs héldu, að
hann mundi alltaf eiga of annríkt til að hyggja á kvonfang og
heimilisstofnun, en svo varð þó ekki, því að vorið 1938 giftist
hann Auði, dóttur Guðrúnar Stefánsdóttur og Jónasar Jónssonar,
fyrrv. ráðherra. Þau áttu alltaf heima á Ásvallag. 11, en sveita-
heimili á Reykjum í Olfusi. Það kom nokkuð við sögu Heklu-
ferðanna 1947. Þau Auður og Steinþór eignuðust tvö efnileg