Andvari - 01.01.1954, Page 32
28
Jón Eyþórsson
ANDVARI
uppi á heiðunum, en kom snemma morguns að Brekku til að
sækja sér vistir, er þar voru geymdar. Tveir danskir dátar voru
í för með honum. Þeir hefðu víst kosið að hvíla sig í byggðinni.
En Steinþór var ekki á því. Nú var að létta til, en undanfama
daga hafði sorti legið á fjöllum. Ég veitti handtökum Steinþórs
ósjálfrátt athygli. Hann gekk beint að því að sækja matarkassana
inn í hús, hagræða í klyfjar og búa upp á hestana. Ekki féklcst
hann um, þótt aðstoðarmönnum hans yrði verkfátt, en gerði
sjálfur það, sem gera þurfti, og hélt svo af stað.
Síðan fóru kynni okkar vaxandi. Við störfuðum talsvert að
málum Ferðafélags íslands og rituðum m. a. í sameiningu lýs-
ingu Kerlingarfjalla. En langnánust urðu lcynni okkar í ferðum
þeim á Mýrdalsjökli, sem áður er drepið á. Steinþór var óvenju-
legur samferðamaður. Hann virtist kunna allt og vita ráð við
flestu. Aldrei man ég eftir, að neitt vantaði af því, sem Steinþór
átti að sjá um, þegar í tjaldstað kom. Hann gat búið sig til ferðar
og útilegu á fáeinum klukkustundum. Þar sem Steinþór var með
í ferð, datt engum öðrum í hug að snerta við matseld, svo heitið
gæti. í mesta lagi sóttum við vatn eða snjó í matinn og létum
við tjaldskör, þar sem Steinþór gat seilzt til þess. Hann gekk
allra manna þrifalegast um tjald og gætti þess vandlega, að vel
væri farið með áhöld og farangur.
Steinþóri var helzt fundið það til foráttu, að hann væri of
fljóthuga og vildi gera allt sjálfur. Nokkuð var til í þessu að því
leyti, að Steinþór var svo eljusamur, að honum féll aldrei verk
úr hendi, og hann var líka bæði fljótvirkur og velvirkur. Menn
sættu sig því fljótlega við það, að Steinþór gerði ýmislegt sjálfur,
sem öðrum hefði öllu heldur borið að gera. Alla jafna fór Stein-
þór gætilega og vissi vel, hvar hættur gátu leynzt. En hann átti
líka til að sleppa varúðinni og fara beint. Ef félagar hans mót-
mæltu hins vegar of miklu djarfræði, var hann fljótur að átta
sig og slá undan.
Mér er ekki grunlaust, að undir niðri hafi leynzt iiokkur ör-
lagatrú með Steinþóri og því hafi hann stundmn látið skeika að